„Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Agnar Már Másson og Jakob Bjarnar skrifa 10. júlí 2026 12:19 „Ég skála í mínum kokteil hvenær sem mér dettur í hug,“ segir Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, blæs á sögusagnir þess efnis að hún hafi farið í áfengismeðferð í byrjun sumars. Hún viðurkennir í samtali við Vísi að hún hafi sjálf heyrt kjaftasögur þess efnis, en að hún hafi aldrei farið á Vog enda skáli hún í sínum kokteil hvenær sem henni detti það í hug.
Inga fór í átján daga veikindaleyfi í lok maí og sagði það vera vegna flensu, en fréttastofu hafa á undanförnum vikum borist ábendingar um að ekki væri allt sem sýndist þegar hún fór í veikindaleyfi. Ýmsir vildu meina að Ingu þætti sopinn góður, hún hafi viljað taka á áfengissýki og látið sig hverfa í afvötnun. Inga kannaðist vel við þessar sögusagnir og sagðist sjálf hafa heyrt af þessu og í ýmsum útgáfum. En hún sagði ekkert hæft í þessu. „Nei, það er ekki rétt og ég skála í mínum kokteil hvenær sem mér dettur í hug, og þá er ég bara löngu fallin,“ segir Inga í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá.“ Hún kveðst ekki eiga við nokkurn áfengisvanda að etja en hún hafi þó heyrt frá fólki í kringum sig sem hafi verið spurt þessara spurninga. „Ég var líka búin að heyra af því. En veistu, Inga hefur ekki farið á Vog.“ Eftir að Vísir hafði rætt við hana um málið í morgun fór Inga í beina útsendingu á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem hún blés aftur á þessar sögusagnir. Þar segist Inga blessunarlega hafa verið svo heppin að hafa aldrei þurft að glíma við þennan erfiða sjúkdóm sem alkóhólismi er og því ekki notið frábærrar þjónustu sem fólki bjóðist á Vogi. Segist hún ekki vita hverjum detti það í hug að rúlla svona kjaftasögum af stað. „Þetta er eins og með annað. Fólk lýgur meira en það mígur stundum.”
Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Meðferðarheimili Áfengi Fíkn Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira