„Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Jakob Bjarnar skrifar 10. júlí 2026 13:19 Gummi Kíró hefur opnað umboðsskrifstofu fyrir áhrifavalda. vísir/vilhelm Guðmundur Birkir Pálmason, sem betur er þekktur sem áhrifavaldurinn Gummi Kíró, fær blendnar viðtökur vegna erindis sem hann birti nýverið á Instagram-reikningi sínum. Í það minnsta sköpuðust fjörlegar umræður um erindi hans á Facebook-vegg Kára Sturlusonar framleiðanda þar sem erindi hans var greint í þaula.
Gummi Kíró er búinn að stofna eins konar umboðsskrifstofu fyrir áhrifavalda en hann telur hlutverk þeirra misskilið í nútímasamfélagi. Til að mynda telur hann sum fyrirtæki enn líta á áhrifavaldamarkaðssetningu sem „gjöf“ gegn auglýsingum. „Við borgum ekki reikninga og mat með gjöfum,“ segir Gummi. Áhrifavaldar í þágu þjóðar Kári vekur athygli á þessu og segir „Kíróinn draga hér upp dökka mynd af aðstæðum áhrifavalda.“ Hann segist gráti næst eftir að hafa lesið þetta: „Ég hélt við værum komin lengra sem þjóð.“ View this post on Instagram A post shared by G U M M I K Í R Ó (@gummikiro) Vinir hans á Facebook taka margir hverjir í sama streng og ljóst er að hugur þeirra er hjá áhrifavöldum. Og þeir leggja í púkkið: „Er ekki hægt að hrinda af stað einhverjum svona sjónvarpsviðburði þar sem áhrifavaldar svara í símann og taka við frjálsum framlögum á meðan tónlistarfólk kemur fram frítt fyrir góðan málstað,“ segir Jón Bjarni Steinsson vert og viðburðahaldari. Kári telur þetta þjóðráð og vill hafa viðburðinn í beinni útsendingu í Ráðhúsinu og jafnvel enda á kertafleytingu á Tjörninni. Ófeigur Friðriksson vill skýra viðburðinn „Áhrifavaldar í þágu þjóðar“ eða: „Engir áhrifavaldar, engin þjóð.“ Hver ætlar þá að segja af húðrútínunni sinni? Stefán Pálsson sagnfræðingur telur að þessi vandi sem Gummi lýsir verði ekki leystur nema með tækjum stéttabaráttunnar: „Áhrifavaldar þurfa að mynda samtök og koma sameinaðir fram gagnvart viðsemjendum sínum. Og ef það bítur ekki er eina ráðið að áhrifavaldar fari í verkfall – og þá munu menn aldeilis komast að því hvort samfélagið virkar án þeirra!“ Og Karl Örvarsson stórsöngvari er hneykslaður: „Agalega geta sum fyrirtæki verið vitlaus! Að láta t.d. bara fólk fá nýjan bíl og halda að það sé nóg... Þetta er svo ljótt!“ Blaðamaðurinn Andrés Magnússon spyr hvort skattstjóri hafi gefið út einhverjar leiðbeiningar eða skýrslur sem varpa betra ljósi á þýðingu þessarar atvinnugreinar fyrir efnahagslífið? Og Kári bætir við: „Ég meina, ef áhrifavaldar deyja út, hver ætlar þá að segja okkur frá húðrútínunni sinni?“ Hver eru raunveruleg áhrif áhrifavalda? Og þannig velta menn upp ýmsum hugmyndum sem gætu orðið að liði þegar kröpp kjör áhrifavalda eru annars vegar. En sumir velta því fyrir sér hver áhrif áhrifavalda séu þegar allt kemur til alls? Maður sem kallar sig Toggi Pop og er tónlistarmaður segir áhugavert að nú reki Gummi Kíró umboðsskrifstofu fyrir áhrifavalda og tali eins og það sé bara ógeðslega mikið að gera; „þau að hafa miklar tekjur eftir að hafa gengið til liðs við hann og búin að birta alveg slatta af svona spurt og svarað vídjóum um þá starfsemi nýlega. Svo er hann með sirka 40 læk á hvert vídjó. Rosa áhrif. Maður nær næstum svipuðum árangri í group chatti á Messenger.“
Samfélagsmiðlar Menning Grín og gaman Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Lífið Fleiri fréttir Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Sjá meira