„Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Agnar Már Másson skrifar 13. júlí 2026 13:10 Mikið hefur farið fyrir áhrifavöldum og tónlistarmönnum í auglýsingum veðmálasíðna. Samsett/Coolbet/Epicbet Sálfræðingur og tónlistarmaður segir að áhrifavaldar sem auglýsi veðmálasíður verði að líta í eigin barm. Ungir menn eigi auðvelt með að sogast inn í spilafíkn, sem geti síðan leitt til sjálfsvígshugsana. Það orki einnig tvímælis að tónlistarmenn sem syngi um það hve erfitt er að alast upp í kringum fíkn auglýsi sjálfir veðmálasíður.
Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur, sem er einnig kenndur við rokksveitina Maus, segir að um stóran vanda að ræða. Hann segir að veðmálasíður sem þessar, svo sem Coolbet eða Epicbet, séu mikið vandamál meðal menntaskólakrakka og að þær valdi beinlínis skaða. „Þeir sem eru að pósta þessu, eða þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum, ættu svolítið að líta í sinn eigin barm og spá aðeins í hvað þeir eru að gera,“ segir Birgir. Íslendingar eyða tugum milljarða á ári á ólöglegum veðmálasíðum. Ungmenni á Íslandi veðja næst mest allra í Evrópu, samkvæmt ESPAD-könnuninni sem mældi spilun meðal 15–16 ára nemenda í 37 löndum. Birgir segir að spilafíkn sé falinn vandi sem fólk tali ekki opinskátt um. Fólk hafi tilhneigingu til að monta sig aðeins af vinningum en þegja yfir háum fjárhæðum sem tapast. „Ég er líka sálfræðingur hjá Píeta samtökunum og þessu fylgir svo mikil skömm og svo kemur einangrun og þá ertu kominn í aðstæður þar sem sjálfsvígshætta getur hækkað.“ Sálfræðingurinn útskýrir að spilafíkn virki sömu verðlaunastöðvar í heilanum og neysla fíkniefna. Viðkomandi leiti þá ítrekað að sömu vellíðan eða „fixi“ og hann fékk við fyrsta stóra vinninginn. „Og ef þú hefur til dæmis unnið stóran vinning einhvern tímann í bara spilakassa, skafmiða eða á netinu, og vannst það ungur, þá bara geturðu bara ruglað þessar verðlaunastöðvar í ríminu og þú ert alltaf að leita að þessu sama fixi og þessu sama „high“-i eins og þú fékkst áður,“ segir hann. „Tölfræðin á bak við þetta er þannig að þú getur ekki unnið, þú ert forritaður til þess að tapa. Þannig að þessar veðmálastofnanir vilja að þú haldir áfram. Þær læsa þig inni í vítahring sem þú kemst ekki upp úr.“ Því séu það mikil vonbrigði að tónlistarmenn og áhrifavaldar sem hafi jafnvel sjálfir alist upp í kringum fíkn auglýsi veðmálasíður. Birgir birti einnig myndskeið á TikTok þar sem hann fjallar um málið. Sjá má það hér að neðan. @biggi.maus3 Þarf alltaf að Blóðmjólka? #storytime #tónlist #íslandtiktok ♬ original sound - Biggi Maus Birgir, sem hefur sjálfur verið kenndur við hljómsveitina Maus, nefnir einn tónlistarmann sem dæmi: popparann Kristmund Axel. „Hann [Kristmundur] er að live-streama hlutum sem hann er að spila á netinu og hans hlustendahópur er akkúrat á þessum aldri og þarna er maður sem er að syngja mikið um sársaukann á bak við það að alast upp við foreldri sem er alkóhólisti en er síðan – kannski bara óafvitandi – að dreifa sama sársauka sjálfur,“ segir Birgir Örn. Hann hvetur áhrifavalda til að axla ábyrgð og spyrja sig hvaða áhrif þeir eru að hafa. Birgir ítrekar að ábyrgðin liggi hjá hverjum og einum, sérstaklega á meðan fjárhættuspil á netinu eru í þessari gráu stöðu. Hann minnir á að það sé ástæða fyrir því að fjárhættuspil séu bönnuð með lögum á Íslandi. Eigendur veðmálasíðna greiða enga skatta eða gjöld hér á landi vegna laga sem hefur ekki verið breytt síðan árið 2005. Dómsmálaráðherra skipaði í vor spretthóp sem ætti að leggja til breytingar á lögum um veðmálastarfsemi en hann hefur ekki enn skilað tillögum sínum. Samkvæmt svörum frá ráðuneytinu er von á tillögum í eða um ágúst. Í frammhaldi af viðtalinu við Birgi leitaði fréttastofa eftir viðbrögðum frá Guðmundi Birki Pálmasyni, þ.e. Gumma Kíró, en hann hefur komið fram sem umboðsmaður áhrifavalda. Hann baðst undan viðtali.
Fjárhættuspil Fíkn Heilbrigðismál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira