Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 15. júlí 2026 20:03 Sigrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands segir sturtur vera forendur þess að fólk megi reka fargufur. Vísir/Ívar Fannar Skortur er á því að almenn hreinlætisaðstaða sé við sumar fargufur og engin sem sótt hefur um leyfi fyrir fargufu hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands hefur uppfyllt slíka kröfu. Framkvæmdastjórinn hefur áhyggjur af mögulegri smithættu í gufunum.
Á síðustu árum hafa færanleg gufuböð eða svokallaðar fargufur notið nokkurra vinsælda hér á landi. Til að mega reka og bjóða fólki að koma í fargufu þarf að fá sérstakt starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitinu á hverju svæði. Heilbrigðiseftirliti Suðurlands hafa á síðustu misserum borist beiðnir um slík leyfi. „Þau erindi sem við höfum fengið hafa ekki uppfyllt þær kröfur sem eru gerðar samkvæmt reglugerð. Í reglugerð um sund- og baðstaði, sem sagt hollustuhætti á sund- og baðstöðum eins og hún heitir fullu nafni, er alveg skýr krafa um sturtu. Það er kannski ekki alveg eins fast kveðið á orði með salernin en auðvitað er það bara sjálfsögð þjónusta að vera með bæði sturtu og salerni,“ segir Sigrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Þá þurfi líka að vera búningsaðstaða á staðnum. Þeir sem sótt hafa um leyfi hjá þeim hafa ekki uppfyllt þessar kröfur. „Þeir hafa jafnvel verið bara með tjald eða eitthvað slíkt, eitthvað svona einfalt eða jafnvel hjólhýsi og hafa ekki uppfyllt þessar kröfur. Þannig að þeir hafa ekki fengið afgreitt leyfi til að reka þetta.“ Hún segir mjög mikilvægt að sturta sé á svæðinu til að fólk geti þvegið sér áður en það fer í gufuna og eftir hana. „Þetta eru bara almennar hreinlætiskröfur. Það er almennt gerð krafa um það þegar þú ferð í gufu á sund- og baðstað, að þá byrjarðu á að fara í sturtu. Síðan þegar þú ert búinn í gufunni, þá ertu búinn að svitna mjög mikið. Það náttúrulega koma alls konar eiturefni út með svitanum, þannig að þú vilt þvo það af þér líka.“ Þá skipti miklu máli að þrífa aðstöðuna vel á milli hópa til að koma í veg fyrir að sýkingar komi upp. „Það sem við höfum áhyggjur af er smithætta, sem sagt krosssmit á milli fólks. Þetta er bara svipað og á sund- og baðstöðum, að þar er mesta hættan að þú smitist af næsta manni af einhverju.“
Gufuböð Sund Sundlaugar og baðlón Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli Sjá meira