Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Jón Þór Stefánsson skrifar 16. júlí 2026 12:35 Viðhorf til starfs strætóbílstjóra er að breytast innan stéttarinnar. Vísir/Vilhelm Pétur Karlsson, trúnaðarmaður hjá Strætó, segir það daglegt brauð að vagnstjórar þurfi að eigast við ógnvænlega hegðun í strætisvögnum. Þá glími kollegar þeirra, leigubílstjórar einnig við slíka erfiðleika.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í vikunni mann í skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á vagnstjóra, þar sem hann bæði kýldi hann ítrekað og potaði í augu hans. Að því tilefni heyrði fréttastofa í Pétri. „Það hefur töluvert verið kvartað undan því, já, yfir ógnvænlegri hegðun. Það er ekki beint verið að ráðast á með höndum daglega, en þetta ógnvænlega atferli, það er í gangi alla daga,“ segir Pétur. Útaf þessu, er viðhorfið til starfsins að breytast innan stéttarinnar? „Já, svona frekar. Fólk telur sig ekki nógu öruggt í þessu,“ segir Pétur, en tekur þó fram að flestum líki vel við starfið fyrir utan þennan tiltekna þátt. Greint var frá því í fyrra að Strætó hafi varið fjórum milljónum króna mánaðarlega í öryggisgæslu í Mjódd síðasta vor. En hætt var með þá gæslu í júní í fyrra. Jafnframt hafi lögreglan vaktað svæðið. Pétur segir að síðastliðin tvö ár hafi verið rætt um að hafa öryggisgæslu í vögnum eða á stöðvum, líkt og í Mjóddinni, sem sé líklega fjölfarnasta stoppistöðin. „Það væri kannski full þörf á því, en það er kannski bara mín skoðun.“ Í gær var greint frá því að leigubílstjóri hafi verið stunginn af farþega í Reykjavík á mánudagskvöld, að því er virðist í tilviljanakenndri árás. Eigið þið atvinnubílstjórar undir högg að sækja um þessar mundir? „Miðað við, þá myndi ég telja það, já. Það er orðin raunin í þessum bransa.“
Strætó Mjódd Tengdar fréttir Drengur skar mann í Strætó Fjórtán ára drengur skar í fullorðinn mann um borð í strætisvagni á höfuðborgarsvæðinu í gær. 23. mars 2026 16:07 Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að strætisvagnabílstjóri óskaði eftir aðstoð vegna farþega sem neitaði að yfirgefa vagninn. 26. júní 2026 07:21 Lögregla kölluð til vegna manns með eggvopn í strætó Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi vegna manns sem var sagður með eggvopn í strætó. Mögulega er um að ræða eina og sama manninn. 13. september 2024 06:18 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira
Drengur skar mann í Strætó Fjórtán ára drengur skar í fullorðinn mann um borð í strætisvagni á höfuðborgarsvæðinu í gær. 23. mars 2026 16:07
Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að strætisvagnabílstjóri óskaði eftir aðstoð vegna farþega sem neitaði að yfirgefa vagninn. 26. júní 2026 07:21
Lögregla kölluð til vegna manns með eggvopn í strætó Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi vegna manns sem var sagður með eggvopn í strætó. Mögulega er um að ræða eina og sama manninn. 13. september 2024 06:18