„Lýðræðisveisla“ sem skaðar lýðræðið. Forsetinn er á matseðlinum Júlíus Valsson skrifar 17. júlí 2026 15:30 Ógn við öryggisventil þjóðarinnar sem ríkisstjórnin þegir yfir. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir lýsti því yfir í samtali við RÚV þ. 15. júlí s.l. að „þjóðaratkvæðagreiðslan fram undan sé lýðræðisleg æfing fyrir þjóðina“.Á því lýðræðislega veisluborði er embætti forseta Íslands á matseðlinum. 26. grein stjórnarskrár Íslands Þegar Ólafur Ragnar Grímsson synjaði Icesave-lögunum staðfestingar, fyrst árið 2010 og aftur ári síðar, sannaðist að 26. grein stjórnarskrárinnar er meira en dauður bókstafur. Þjóðin felldi samningana í tvígang og sú niðurstaða stóð. Íslensk stjórnskipun inniheldur nefnilega öryggisventil sem virkar þegar Alþingi og ríkisstjórn ganga lengra en þjóðin er reiðubúin að fylgja. Hinn 29. ágúst verður þjóðin spurð hvort hefja skuli aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Umræðan hefur aðallega snúist um vexti, verðlag, sjávarútveg og gjaldmiðil. Um afdrif þessa öryggisventils hafa stjórnvöld hins vegar þagað. Svarið liggur þó fyrir og það er mjög óþægilegt fyrir málstað aðildarsinna. Málskotsréttur forseta Íslands Málskotsrétturinn hyrfi ekki alveg úr stjórnarskránni við aðild. Formlega stæði 26. greinin óbreytt og forseti gæti eftir sem áður synjað íslenskum lagafrumvörpum staðfestingar. Gildissvið greinarinnar myndi hins vegar skerðast jafnt og þétt, því aðild að ESB færir verulegan hluta löggjafarvaldsins út fyrir það ferli sem hún tekur til og út fyrir Alþingi Íslendinga. Reglugerðir ESB eru bindandi Reglugerðir ESB eru bindandi í heild sinni og réttaráhrif þeirra gilda strax í aðildarríkjunum án nokkurrar innleiðingar. Þær koma því ekki inn á Alþingi sem lagafrumvörp og þar með aldrei á borð forseta Íslands.Hvorki gæti forseti synjað þeim staðfestingar né þjóðin fellt þær í atkvæðagreiðslu!Gagnvart þessum sívaxandi hluta réttarreglna yrði 26. greinin óvirk án þess að stafkrók þyrfti að breyta í stjórnarskránni hvað það varðar. Sama gildir um bindandi ákvarðanir stofnana sambandsins sem beint er að Íslandi. Tilskipanir ESB Tilskipanir þarf vissulega að innleiða með lögum og formlega héldi forseti synjunarvaldi gagnvart innleiðingarlögum. Hér segir forgangsregla ESB-réttar til sín, sú regla sem Evrópudómstóllinn mótaði þegar í Costa gegn ENEL árið 1964. Felldi íslenska þjóðin innleiðingarlög í atkvæðagreiðslu stæði skuldbindingin eftir sem áður. Ísland yrði brotlegt aðildarríki, framkvæmdastjórnin gæti höfðað samningsbrotamál fyrir Evrópudómstólnum og ríkið sætt dagsektum uns innleiðing færi fram. Þjóðaratkvæðagreiðsla gæti tafið innleiðingu um hríð en aldrei stöðvað hana. Málskotsrétturinn héldi forminu en glataði efninu, því orð þjóðarinnar eða forsetans hefði ekkert endanlegt gildi gegn skuldbindingunni. Munurinn á aðild að ESB og EES Hér skilur á milli EES og ESB með hætti sem sjaldan er dreginn fram. Innan EES fara réttarreglur í gegnum íslenska löggjöf áður en þeim er beitt hér á landi og Icesave-málin sýndu að þjóðin getur haft raunveruleg áhrif á milliríkjaskuldbindingar meðan Ísland stendur utan ESB. Sambærileg atburðarás yrði stjórnskipulega ófær innan ESB á þeim sviðum þar sem sambandið fer með valdheimildir. Ólafur Ragnar hefur sjálfur bent á að málskotsrétturinn næði hvorki til gerða sem yrðu sjálfkrafa hluti af íslenskum rétti né úrskurða dómstóla sambandsins. Hann er sá eini sem hefur beitt greininni og þekkir hana betur en aðrir núlifandi menn. Aðild að ESB krefst breytinga á stjórnarskránni Fræðileg niðurstaða liggur einnig fyrir. Í álitsgerð Arnaldar Hjartarsonar og Hafsteins Þórs Haukssonar fyrir utanríkismálanefnd frá apríl 2026 er talið útilokað að Ísland gangi í ESB án stjórnarskrárbreytingar sem heimilar framsal löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds. Við þá breytingu vaknar spurning sem enginn hefur svarað: á að undanskilja 26. greinina berum orðum gagnvart ESB-tengdri löggjöf eða láta ósamræmið standa? Fyrri kosturinn viðurkennir skerðinguna opinskátt fyrir kjósendum. Sá síðari skilur eftir lifandi stjórnarskrárákvæði sem stangast á við þjóðréttarskuldbindingar ríkisins og bíður þess að einhver forseti framtíðarinnar taki það alvarlega. Ríkisstjórnin segir viljandi ósatt! Ríkisstjórnin kýs að ræða hvorugt og segir aðeins verið að sækja umboð til viðræðna. En kjósandi sem gengur að kjörborðinu á rétt á að vita hvert ferðinni er heitið. Lýðræðislegt inntak stjórnarskrárinnar, réttur þjóðarinnar til að eiga síðasta orðið um þau lög sem hún býr við, myndi rýrna í réttu hlutfalli við það löggjafarvald sem flyttist til Brussel. Þetta yrði hvergi nefnt í aðildarsamningi og aldrei fellt úr gildi með berum orðum. Þjóðin ætti heimtingu á að heyra það frá þeim sem fyrir vegferðinni tala, áður en hún greiðir atkvæði.„Lýðræðisveisla“ ríkisstjórnarinnar gæti því hæglega skaðað embætti forseta Íslands og lýðræðið á Íslandi, varanlega. Höfundur er læknir og fullveldissinni. Heimildir: Arnaldur Hjartarson og Hafsteinn Þór Hauksson. Álitsgerð um stjórnskipuleg álitaefni vegna aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Unnin fyrir utanríkismálanefnd Alþingis, Lagastofnun Háskóla Íslands, 20. apríl 2026. Björg Thorarensen. Stjórnskipunarréttur: Undirstöður og handhafar ríkisvalds. Reykjavík: Codex, 2015. Dómur Evrópudómstólsins 15. júlí 1964 í máli 6/64, Flaminio Costa gegn E.N.E.L., ECLI:EU:C:1964:66. Sáttmálinn um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 288. gr. um réttaráhrif reglugerða og tilskipana, sbr. og 258.–260. gr. um samningsbrotamál. Stjtíð. ESB C 202, 7. júní 2016. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, einkum 21. og 26. gr. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Júlíus Valsson Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar