Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. júlí 2026 16:03 Grótta fagnaði 6-1 sigri gegn Ægi. GRÓTTA KNATTSPYRNA Grótta vann 6-1 gegn Ægi en Grindavík og ÍR gerðu markalaust jafntefli í 14. umferð Lengjudeildar karla í fótbolta.
Gróttumenn voru í banastuði á Seltjarnarnesi í dag og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik. Þeir settu svo fimmta markið í upphafi seinni hálfleiks og bættu því sjötta við skömmu eftir að Ægismenn minnkuðu muninn. Hinn sextán ára gamli Matthías Kjeld skoraði tvennu fyrir Gróttu og er kominn með átta mörk í Lengjudeildinni í sumar. Nökkvi Már Nökkvason, Björgvin Brimi Andrésson og Jónatan Ari Bragason komust einnig á blað fyrir Gróttu. Daníel Karl Þrastarson náði að skora fyrir bæði lið í þessum leik. Hann bætti upp fyrir sjálfsmark á 47. mínútu með marki á 67. mínútu fyrir Ægi. Sigurinn lyftir Gróttu upp í 5. sæti Lengjudeildarinnar en Ægismenn sitja enn límdir við botninn. Engin mörk í Grindavík Grindavík gerði þriðja markalausa jafnteflið í röð á heimavelli þegar ÍR kom í heimsókn. Meira en mánuður er síðan mark var síðast skorað á heimavelli Grindavíkur og það gerðist í 0-1 tapi gegn Fylki. Grindavík hefur ekki skorað sjálft á heimavelli síðan þann 27. maí. ÍR-ingar hafa ekki heldur fagnað góðu gengi að undanförnu en liðin sitja í 9. og 10. sæti deildarinnar. Grindavík með 14 stig, einu meira en ÍR.
Lengjudeild karla Grótta Ægir UMF Grindavík ÍR Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira