Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Samúel Karl Ólason skrifar 22. júlí 2026 13:50 Daniel Siad og Jeffrey Epstein. Franskur maður sem kynnti Jeffrey Epstein fyrir fyrirsætum í gegnum árin fannst látinn á heimili sínu í gær. Daniel Siad var 69 ára gamall en ekki liggur fyrir enn hvernig hann dó.
Siad var einn nokkurra franskra manna sem unnu við það að finna fyrirsætur og hafa verið sakaðir um að hjálpa Epstein við að misnota ungar konur. Jean-Luc Brunel var annar slíkur maður en hann var handtekinn fyrir nauðgun árið 2020 og fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2022. Sjálfur dó Epstein í fangelsi árið 2019. Sjá einnig: „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Siad hafði meðal annars verið sakaður um nauðgun og var til rannsóknar hjá löggæsluembætti sem sérhæfir sig í að rannsaka mansal. Hann sagðist aldrei hafa brotið af sér og hafði sagst vilja ræða við lögregluþjóna um ásakanirnar. Sú umræða fór þó aldrei fram, samkvæmt frétt France24. Nafn Siads birtist gífurlega oft í hinum svokölluðu Epstein-skjölum. Þar kemur meðal annars fram að Epstein greiddi Siad tugi þúsunda dala gegnum árin fyrir það að leita að ungum konum, sem Frakkinn líkti við fiskveiði. Í einu skjali, sem snýr að samskiptum Siads og Epsteins á Skype, sést að Epstein bað Frakkann um að taka mynd af einhverri konu og vegabréfi hennar. „Hún er mjög sæt,“ segir Epstein á einum tímapunkti. Eftir að hann biður um frekari myndir og fær þær segir hann svo: „Hún virðist ekki glöð“ og „Eru þetta gervibrjóst?“ Siad svaraði og sagði að hún væri mjög ljúf og kurteis og að hún hefði farið í brjóstaaðgerð. Í öðrum skilaboðum þeirra á milli sendi Siad Epstein mynd af konu sem hann sagði einnig „kurteisa“ og að hún gæti verið aðstoðarkona auðjöfursins eða fyrirsæta. Epstein svaraði: „Of gömul.“ Samkvæmt CNN sendi Siad Epstein myndir af fjölda kvenna í gegnum árin. Sneri sér að Austur-Evrópu eftir fangelsisvist Epstein hafði fyrst verið handtekinn árið 2006. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir nokkurra ára tímabil. Til stóð að ákæra hann í 32 liðum og þá meðal annars fyrir að hóta sextán ára stúlku. Sjá einnig: Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Eftir handtökuna og afplánunina einbeitti Epstein sér að því að flytja ungar konur frá Evrópu og aðallega Rússlandi til Bandaríkjanna, á þeim grunni að þær væru fyrirsætur. Á þessum konum braut hann í skjóli þess að þær voru háðar honum upp á bæði peninga og landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Þá þrýsti hann einnig á þær og fékk til að segja sér frá samneyti þeirra með öðrum mönnum. Grunur leikur á að eftir að hann var upprunalega fangelsaður 2008 hafi menn eins og Siad aðstoðað hann við að finna þessar konur.
Mál Jeffrey Epstein Frakkland Erlend sakamál Andlát Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira