Leggur til breytingar á útivistartíma barna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. júlí 2026 10:07 Inga Sæland vill leyfa tíu til tólf ára börnum að vera lengur úti. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðherra hyggst lengja útivistartíma tíu til tólf ára barna um eina klukkustund yfir vetrartímann. Þá verður útvistartíminn á sumrin í gildi í skemmri tíma.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á barnaverndarlögum sem varða útivistartíma barna. Breytingarnar sem lagðar er til er meðal annars að börn á aldrinum tíu til tólf ára fái að vera á almannafæri til klukkan 21 yfir vetrartímann í stað klukkan 20 líkt og lögin segja til um núna. Börn á aldrinum þrettán til sextán ára fái áfram að vera úti án fylgdar til klukkan 22 en eftir þann tíma þurfi þau að vera í fylgd með fullorðnum eða á leið heim úr skóla-, íþrótta- eða frístundastarfi. Einnig hyggst ráðherrann með frumvarpinu samræma útivistartímann yfir sumartímann betur að skólaárinu. Útivistartíminn yfir sumartímann verði þess í stað frá 1. júní til 1. september í stað þess að hann sé í gildi 1. maí til 1. september. Engar breytingar hafa verið gerðar á reglum um útivistartíma barna frá árinu 1992. „Á þeim tíma hafa aðstæður barna, félagsleg samskipti og tómstundastarf breyst verulega, ekki síst með tilkomu stafræns umhverfis. Í samráði við börn hefur ítrekað komið fram ákall um meiri sveigjanleika og rýmri útivist í takt við aukinn þroska þeirra,“ segir í samráðsgátt.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Litlu nær um peningana í Fljótagöng Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira