Chelsea að hreppa Lacroix Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2026 09:13 Maxance Lacroix er á leið til Chelsea. Michael Pimentel/ISI Photos/ISI Photos via Getty Images Chelsea virðist vera að ganga frá kaupum á franska miðverðinum Maxance Lacroix frá Crystal Palace.
Skiptin eru gott sem frágengin og mun 26 ára miðvörðurinn færa sig til innan Lundúna. Hann hafði einnig verið orðaður við Liverpool og Bayern Munchen. Hann mun kosta Chelsea 52 milljónir punda og ganga undir læknisskoðun í dag áður en hann skrifar undir sex ára samning við liðið. Lacroix hefur verið meðal efri manna á óskalista Chelsea í sumar, þar sem þörf er á styrkingu fyrir miðri vörn liðsins. Einnig hafði félagið augastað á Jacobo Ramon, miðverði Como. Lacroix kom til Palace frá þýska liðinu Wolfsburg fyrir 20 milljónir evra sumarið 2024 og hefur verið lykilmaður í vörn liðsins síðan. Hann spilaði 98 leiki á tveimur leiktíðunum í Suður-Lundúnum. Fyrir eru miðverðirnir Tosin Adabioyo, Benoit Badiashile, Levi Colwill, Mamadou Sarr, Trevoh Chalobah og Wesley Fofana hjá bláklæddum Lundúnaliðum. Lacroix hefur ekki æfingar með Chelsea fyrr en síðar í sumar þar sem hann var hluti af franska landsliðshópnum sem hafnaði í fjórða sæti á nýliðnu heimsmeistaramóti. Xabi Alonso tók við þjálfun liðsins í sumar og mun Lacroix vera fimmti leikmaðurinn sem bætist við hópinn. Ítalski hægri bakvörðurinn Marco Palestra, framherjinn Emmanuel Emegha, kantmaðurinn Geovany Quenda og miðjumaðurinn Morgan Rogers hafa þegar samið við liðið. Kaup og sölur Chelsea í sumar Kaup: Marco Palestra, hægri bakvörður, frá Atalanta á 43 milljónir punda Emmanuel Emegha, framherji, frá Strasbourg á 22 milljónir punda Geovany Quenda, kantmaður, frá Sporting á 40 milljónir punda Morgan Rogers, miðjumaður, frá Aston Villa á 117 milljónir punda Sölur: Marc Cucurella, vinstri bakvörður, til Real Madrid á 47,5 milljónir punda Tyrique George, kantmaður, til Everton á 18 milljónir punda Andrey Santos, miðjumaður, til Manchester United á 48 milljónir punda
Chelsea FC Crystal Palace FC Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Fótbolti Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira