Viðskipti innlent

Ríkið ekki lengur á­byrgt fyrir neinum skuldum Lands­virkjunar

Árni Sæberg skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Landsvirkjun

Landsvirkjun greiddi í dag upp síðasta skuldabréf félagsins sem naut ríkisábyrgðar.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að um sé að ræða mikilvæg tímamót í fjármögnunarsögu orkufyrirtækis þjóðarinnar og lokaskref í þeirri vegferð að afnema ríkisábyrgð af öllum lánum fyrirtækisins.

Skuldabréfið hafi verið gefið út árið 2006 undir EMTN skuldabréfaramma félagsins og verið að fjárhæð 150 milljónir evra, eða jafnvirði um 21 milljarðs króna. Lánið hafi verið tekið til að fjármagna framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun og lánstími þess tuttugu ár. Landsvirkjun hafi greitt ríkissjóði árlegt ríkisábyrgðargjald vegna ábyrgðarinnar.

Hlutfall lána Landsvirkjunar með ríkisábyrgð hafi lækkað ört á undanförnum árum í samræmi við markmið fyrirtækisins um að draga úr og að lokum afnema ríkisábyrgð. Landsvirkjun hafi um árabil fjármagnað sig á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum án ríkisábyrgðar, á grundvelli eigin fjárhagsstyrks og lánshæfismats.

Eftir uppgreiðslu skuldabréfsins í dag séu því engin lán Landsvirkjunar lengur með ríkisábyrgð, sem endurspegli sterka fjárhagsstöðu orkufyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×