Veður

Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Kastárfjall er austur af Höfn í Hornafirði.
Kastárfjall er austur af Höfn í Hornafirði. Vísir/Vilhelm

Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Austfjörðum og sunnan Vatnajökuls í kvöld og fram á morgundaginn.

Þetta segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Vindurinn geti reynst varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.

Vindkort fyrir kl. 22 í kvöld. Veðurstofa Íslands

„Lægð hefur grafið um sig austur af landinu og veldur ákveðinni norðanátt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. 

„Á Austfjörðum er sums staðar allhvasst og snarpar vindhviður við fjöll. Í kvöld hvessir einnig sunnan Vatnajökuls og því varasamt að vera á ferðinni á þessum slóðum í ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×