Hausverkur fyrir Iraola Valur Páll Eiríksson skrifar 27. júlí 2026 23:30 Iraola hefur að líkindum áhyggjur af varnarlínunni. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images Miðvarðarstaðan olli mörgum stuðningsmönnum Liverpool hugarangri síðasta vetur er liðið lék undir stjórn Arne Slot. Það virðist vera hausverkur sem eftirmaður hans erfir.
Tveir miðverðir vöktu sérstaka athygli á HM U17 ára í Katar í nóvember í fyrra. Mor Talla Ndiaye frá Senegal og Ifeanyi Ndukwe frá Austurríki. Liverpool borgaði samtals um 3,5 milljón punda fyrir þá tvo en fæstir bjuggust við því að þessi 18 ára gamli dúett myndi spila stærstan hluta fyrsta leiks nýs þjálfara í hjarta varnar Liverpool. Joe Gomez fór meiddur af velli í fyrsta æfingaleik Liverpool, er liðið vann 4-2 sigur á Sunderland í Bandaríkjunum um helgina. Vera má að Gomez verði frá um hríð vegna þeirra meiðsla en Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, sagði fyrir þau meiðsli að Liverpool væri býsna þunnskipað varnarlega. Gomez kom til Liverpool frá Charlton árið 2015 og er sá leikmaður sem hefur lengst verið hjá félaginu. Hann hefur verið einkar óheppinn með meiðsli og alls misst af 225 keppnisleikjum sökum meiðsla á árunum ellefu í Bítlaborginni. Liverpool hugðist styrkja miðvarðarstöðuna með kaupum á Marc Guéhi síðasta sumar en ekki tókst að ganga frá þeim kaupum. Liverpool reyndi ekki aftur við hann í janúar þegar hann fór til Manchester City. Ibrahima Konaté fór frítt til Real Madrid í sumar en Liverpool keypti þó Frakkann Jeremy Jacquet fyrir 60 milljónir punda. Hann er að jafna sig eftir meiðsli og spilaði ekki um helgina og sömu sögu er að segja af Ítalanum bráðefnilega Giovani Leoni sem sleit krossband síðasta haust. Virgil van Dijk kemur til æfinga með liðinu á næstu dögum en er 35 ára gamall og samningur hans rennur út næsta sumar. Sömu sögu er að segja af samningi Gomez. Talið er líklegra en ekki að þeir yfirgefi félagið að ári liðnu. Búist er við því að hinn 21 árs gamli Jacquet þreyti frumraun sína í næsta æfingaleik við Leeds á sunnudag. Eitthvað lengra er í hinn 19 ára gamla Leoni. Liverpool hefur þegar keypt Victor Munoz auk Jacquet í sumar, fyrir samtals tæplega 95 milljónir punda. Takist liðinu að klófesta Bradley Barcola frá PSG fyrir meira en 100 milljónir er ljóst að lítið er eftir í kassanum fyrir frekari viðbætur við hópinn. Fari svo virðist liggja ljóst fyrir að ungir menn þurfi að axla töluverða ábyrgð í varnarleik liðsins á komandi leiktíð.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira