Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. júlí 2026 12:39 Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg Andstaða aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins við aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist samkvæmt nýrri könnun Gallup meðal fyrirtækjanna. Fullveldið vegur hvað þyngst.
Samtök atvinnulífsins (SA) létu framkvæma könnun meðal aðildarfyrirtækja sinna og í niðurstöðum hennar kemur fram að 66 prósent fyrirtækjanna eru andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er tíu prósenta aukning frá síðustu könnun. 22 prósent eru samþykk aðild og taka tólf prósent ekki afstöðu. Fleiri eru þó hlynnt upptöku evru eða alls 36 prósent fyrirtækjanna en rúmur helmingur, 41 prósent, er andvígur. „Þegar spurt var hvaða sjónarmið hefðu mest áhrif á afstöðu til aðildar kom fullveldi Íslands langsterkast fram. Næst á eftir fylgja sjónarmið sem tengjast yfirráðum yfir náttúruauðlindum, regluverki Evrópusambandsins, sjálfstæðu ákvörðunarvaldi Íslands og efnahagslegu svigrúmi, meðal annars þegar kemur að vöxtum og verðbólgu,“ segir í tilkynningunni. Andstaðan virðist ekki bundin við stærð fyrirtækjanna heldur séu sömu grunnsjónarmið sem ráða mestu um afstöðuna. Einnig er meirihluti andvígur í öllum landshlutum. „Könnunin sýnir að andstaða aðildarfyrirtækja við ESB-aðild hefur aukist frá fyrri mælingum. Það sem vekur þó ekki síður athygli er að fyrirtækin nefna fyrst og fremst fullveldi Íslands, stjórn yfir eigin auðlindum og sjálfstætt ákvörðunarvald sem ástæður fyrir afstöðu sinni. Það eru skilaboð sem ætti að taka alvarlega,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra SA, í tilkynningunni. Fréttin hefur verið uppfærð. Missamræmi var í tilkynningu SA sem hefur nú verið leiðrétt.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Skoðanakannanir Atvinnurekendur Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira