Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).

Fréttamynd

Um peninga­legt full­veldi og fram­sal þess

Ljóst er að með inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru verður viðbótar framsal okkar svo umfangsmikið að telja verði að Ísland hafi þar með afsalað sér peningalegu fullveldi sínu. Það verður dýru verði keypt og um það verður ekki samið.

Umræðan

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fleiri þing­menn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara

Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. 

Innlent
Fréttamynd

„Jón Sigurðs­son nefndi aldrei sjálf­stæði“

„Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Telja Ís­land geta liðkað fyrir inn­göngu Svart­fjalla­lands

Ákveði Íslendingar að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið gæti það greitt götu Svartfjallalands inn í Evrópusambandið, að því er fram kemur í frétt Reuters. Þar er haft eftir háttsettum erindreka innan ESB að viðræður við auðugt ríki á borð við Ísland geti dregið úr efasemdum um frekari stækkun sambandsins.

Erlent
Fréttamynd

Á­fram Ís­land vísar full­yrðingum Krist­rúnar á bug

Áfram Ísland stendur við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Samtökin vísa á bug fullyrðingum forsætisráðherra um að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“

Innlent
Fréttamynd

Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir

Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína á morgun. Markaðurinn fylgist að venju grannt með en að þessu sinni hafa aðilar vinnumarkaðarins og fylkingarnar í ESB-málinu einnig sérstaka ástæðu til að leggja við hlustir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Krist­rún skýtur fimm­tíu milljarðana niður

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 

Innlent
Fréttamynd

Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði

Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fór fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga tókust á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar.

Innlent
Fréttamynd

Allt gert til að stöðva birtinguna

Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar.

Innlent
Fréttamynd

Helstu samsæriskenningarnar um Evrópu­sam­bandið

Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug.

Lífið
Fréttamynd

Um sex­tán þúsund greitt at­kvæði utan kjör­fundar

Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn fjar­lægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“

Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni.

Innlent
Fréttamynd

Það er jóker í spilinu

Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið.

Innlent
Fréttamynd

Sér­staða Ís­lands úti­lokar að líkindum aðild að ESB

Um samningsmarkmið í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB verður að tala opið og skýrt um sjávarútvegsmálin. Dæmi um skort á þessu er að finna í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar - það er fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna - á tillögu utanríkisráðherra um að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.

Umræðan
Fréttamynd

Velti allt á því hverjir mæti á kjör­stað

Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað.

Innlent
Fréttamynd

Bændur í bar­áttu­hug á leið í her­ferð um landið

Bændur búa sig undir baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búnaðarþing hefur hafnað því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju og á næstu dögum hefja Bændasamtökin fundarherferð um landið til að kynna sinn málstað.

Innlent
Fréttamynd

Enginn mark­tækur munur á jáurum og neiurum

Ekki er marktæktur munur á jáurum og neiurum samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem gefinn var út nú í dag. Ögn fleiri eru hlynnt áframhaldandi viðræðum en munurinn er tölfræðilega minniháttar.

Innlent