Körfubolti

Martin á­fram í Ber­lín

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Martin Hermannsson varð Þýskalandsmeistari í vor og einnig þýskur meistari með Alba Berlín árið 2020.
Martin Hermannsson varð Þýskalandsmeistari í vor og einnig þýskur meistari með Alba Berlín árið 2020. Getty/Andreas Gora

Martin Hermannsson, Þýskalandsmeistari í körfubolta með liði Alba Berlin, hefur ákveðið að framlengja samning sinn við félagið til ársins 2029.

Martin var hetja Alba Berlin í úrslitaeinvíginu í vor og skoraði sigurkörfuna í stórum endurkomusigri í oddaleiknum gegn stórliði Bayern Munchen.

Samningur hans rann svo út eftir tímabilið og Martin skoðaði sig aðeins um en ákvað á endanum að halda kyrru fyrir í Berlín.

„Við fjölskyldan erum ótrúlega glöð að snúa aftur til Berlínar til næstu þriggja ára, á okkar annað heimili. Við höfum verið saman lengi en ég er tilbúinn að halda áfram enn lengur. Eftir ótrúlegt síðasta tímabil get ég ekki beðið eftir að komast aftur á völlinn. Og ég get sagt það að þýskan verður sífellt betri. Á næsta ári mun ég tala þýsku við alla í höllinni,“ sagði Martin í tilkynningu félagsins á Instagram.

„Martin er á einu besta tímabili ferils síns. Heill heilsu, í toppformi og ótrúlega mikilvægur fyrir okkar lið og leikstíl, hvernig við viljum spila körfubolta. Við erum mjög ánægð með að hann muni halda áfram að leiða unga leikmenn okkar áfram og standa sem holdgervingur okkar leikstíls á vellinum,“ segir Himar Ojeda, íþróttastjóri Alba Berlin, í tilkynningu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×