Handbolti

Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bræðurnir Elias og Boas Ellefsen á Skipagötu.
Bræðurnir Elias og Boas Ellefsen á Skipagötu.

Elias Ellefsen á Skipagötu er besti handboltamaður Færeyja og leikur með stórliði Kiel í Þýskalandi. Yngsti bróðir hans virðist einnig kunna ýmislegt fyrir sér miðað við byrjun hans á EM U-18 ára.

Boas Ellefsen á Skipagötu skoraði þrettán mörk þegar Færeyjar unnu Finnland, 38-31, í fyrsta leik sínum í F-riðli Evrópumóts U-18 ára í gær. Aðeins einn leikmaður skoraði fleiri mörk þegar fyrstu leikir mótsins fóru fram í gær; Ísraelinn Yonathan Pelach sem skoraði fjórtán mörk í 33-29 tapi fyrir Króatíu.

Boas er að spila upp fyrir sig en hann er aðeins sextán ára. Hann fæddist 21. nóvember 2009 og er sjö árum yngri en Elias. Miðbróðirinn, hinn 22 ára Rói, er einnig handboltamaður.

Boas leikur með H71 og var valinn leikmaður ársins í færeysku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann fékk einnig verðlaun fyrir að vera besti sóknarmaðurinn og besti nýliðinn í deildinni.

Í kvöld fá Boas og félagar í færeyska liðinu erfitt verkefni en þá mæta þeir Spáni. Í lokaumferð riðlakeppninnar spila Færeyjar svo við Austurríki.

Færeyjar hafa náð góðum árangri á undanförnum árum, bæði yngri landsliðin og svo hefur A-landsliðið komist á tvö Evrópumót og verður meðal þátttökuliða á HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×