Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Rafn Ágúst Ragnarsson og Freyja Þórisdóttir skrifa 5. ágúst 2026 11:31 Enginn þarf að örvænta þó að útlit verði fyrir þungbúinn dag þann 12. ágúst næstkomandi. Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag.
Þessi er fyrsti í röð fróðleiksmola á Vísi sem munu birtast reglulega næstu vikuna þangað til að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólfta ágúst næstkomandi. Almyrkvi frá sólu hefur ekki sést á Íslandi í 72 ár en föstudaginn 20. mars 2015 varð deildarmyrkvi hérlendis. Ógleymanlegasta nótt ævinnar „Við vonumst auðvitað eftir því að veðrið verði til friðs,“ segir hann en tekur fram að upplifunin verði ekkert síðri þó að grátt verði og þungbúið. Veður og skýjafar hafa engu að síður mikil áhrif á hvernig smáatriðin verða. Verði heiðskírt birtist kóróna sólar í allri sinni dýrð, ef háskýjað er og bjart sést hún sömuleiðis og ef léttskýjað er birtist hún einnig inn um skýjaglufur. „Ef það er þungbúið, rigning og leiðindi, þá verður upplifunin samt sem áður mögnuð og ógleymanleg,“ segir Sævar. „Þá upplifum við stystu, skyndilegustu, einstöku, fallegustu og ógleymanlegustu nótt ævinnar.“ Undir þeim kringumstæðum myndum við líklega ekki taka eftir neinum breytingum fyrstu þrjátíu sekúndurnar eða svo eftir að sólmyrkvinn skellur á en um það leyti skylli á ógnarhratt sólsetur. Ef bjart er í fjarska sæjum við sólsetursbirtu og roða í skýjum. Ótrúleg sjón sama hvernig veðrar Erfitt er að segja til um það hvernig veður mun nákvæmlega hafa áhrif á sjónarspilið fyrr en morguninn 12. ágúst þegar hægt er að spá fyrir um ferðalag skýjanna í smáatriðum. Fram að því getur fólk bara beðið, vonað og hlakkað til sjónarspilsins. Á myndbandinu hér að neðan má sjá nóttina sem skall skyndilega á íbúa Rochester í New York-ríki þar sem alskýjaður almyrkvi var þann 8. apríl árið 2024. Þegar allt kemur til alls þarf veðrið því alls ekki að leika við okkur til að sjónarspilið verði stórkostlegt. Alskýjaður almyrkvi færir okkur furðulegustu nótt ævi okkar. Almyrkvi Einnig má sjá götulokanir á höfuðborgarsvæðinu ef þysjað er inn. Smellið á línurnar fyrir frekari upplýsingar.
Geimurinn Almyrkvi 12. ágúst 2026 Sólin Tunglið Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira