Innlent

Sumar­hús al­elda á Þing­völlum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Slökkvilið er nú komið á vettvang og vinnur að því að hefta útbreiðslu eldsins.
Slökkvilið er nú komið á vettvang og vinnur að því að hefta útbreiðslu eldsins. Aðsend

Sumarhús er alelda á Þingvöllum. Slökkviliðsmenn eru komnir á vettvang og vinna að því að hefta útbreiðslu eldsins.

Lárus Kristinn Guðmundsson settur slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu segir slökkviliðsmenn að störfum frá Selfossi og Laugarvatni.

Dvalið var í sumarhúsinu þegar eldurinn kom upp en allir komust út og enginn er slasaður. Um er að ræða sumarhúsið við Birkilund 12 í landi Miðfells.

Um er að ræða venjulegt sumarhús sem stendur í ljósum logum á Þingvöllum. Lítið liggur fyrir þar sem slökkviliðsmenn eru nýkomnir á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×