Handbolti

Mögnuð til­þrif Ís­lendingsins unga vekja at­hygli

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnar Róbertsson í leik með Val hér heima.
Gunnar Róbertsson í leik með Val hér heima. Vísir/Anton Brink

Gunnar Róbertsson, einn af máttarstólpum hins frábæra undir átján ára landsliðs Íslands í handbolta, hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frábær tilþrif í leik liðsins gegn Unverjalandi á EM undir átján ára landsliða á dögunum. 

Íslenska landsliðið hefur staðið sig frábærlega á mótinu til þessa og hefur nú þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum þrátt fyrir að eiga einn leik eftir í milliriðli.

Strákarnir okkar unnu alla leiki sína í riðlakeppninni gegn Svartfjallalandi, Ungverjalandi og Sviss og sigurgangan hélt svo áfram gegn Króötum í milliriðli í gær. Seinna í dag mætir Ísland landsliði Portúgal í seinni leik sínum í milliriðli.

Gunnar Róbertsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Vals sýndi frábæra takta í leik liðsins gegn Ungverjalandi í riðlakeppninni þegar að hann skoraði tvö mörk á aðeins nokkrum sekúndum. 

Fyrra markið kom eftir laglega sókn Íslands þar sem að Gunnar prjónaði sig í gegnum ungversku vörnina og stuttu seinna stal hann boltanum er Ungverjar hófu næstu sókn og skoraði aftur í kjölfarið. Alls skoraði Gunnar tólf mörk í umræddum leik. 

Evrópska handknattleikssambandið deilir myndskeiði af tilþrifum Gunnars á samfélagsmiðlum sínum og segir í færslunni: „sumir leikmenn slökkva aldrei á sér.“

Gunnar á ekki langt að sækja hæfileikana í handboltanum. Faðir hans er fyrrverandi landsliðsmaðurinn og silfurstrákurinn Róbert Gunnarsson. Móðir Gunnars er Svala Sigurðardóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×