„Ég vil vera bestur í öllu“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 20:02 Michelin-stjörnu kokkurinn Aggi Sverris á Moss er viðmælandi í þættinum Litlu hlutirnir með Kára Sverris. Stikla „Enn þann dag í dag vakna ég á morgnana og segi bara: „Shit hvað ég er heppinn maður“. Ég er að vinna við það sem ég elska, þetta er áhugamálið mitt og ég geri þetta alla daga,“ segir Michelinstjörnu-kokkurinn Aggi Sverris sem er einn af fremstu matreiðslumönnum landsins.
Aggi, sem er yfirkokkur á Moss, hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir einstaka matargerð og býr yfir gríðarlegum metnaði en ástríðan fyrir matargerð hefur sannarlega fleytt honum langt í bransanum. Aggi er viðmælandi í nýjasta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris. „Sú reynsla sem mótaði mig mest er væntanlega mótmæli, það hefur verið endalaust mótlæti. Að opna veitingastað, vera rekinn úr vinnu, alls konar en ég hef alltaf hugsað að ég ætli ekki að gefast upp, þetta gerist. Ég hef rosalega ástríðu fyrir öllu sem ég geri, ég vil vera bestur í öllu. Það hefur kannski mótað mig og hjálpað mér helvíti mikið.“ Á Moss skiptir hvert einasta smáatriði máli og nær sú hugsun út fyrir veggi veitingastaðarins hjá Agga, sem tileinkar sér þolinmæði og passar að næra andlegu hliðina fyrir vinnu. Hvern einasta vinnudag þarf hann að vera upp á sitt besta. „Allir dagar eru eins og að spila úrslitaleik,“ segir Aggi en hér má sjá viðtalið við hann í heild sinni: Aggi þrífst á áskorunum og leitast stöðugt að því að toppa sig. „Stundum held ég að einhver réttur sem ég er að gera sé fullkominn. Svo daginn eftir átta ég mig á því að hann er ekki fullkominn. Þetta er hluti af fullkomnunaráráttunni að vera aldrei ánægður. Ég er aldrei ánægður, því miður. Alveg sama hversu vel ég geri þá held ég alltaf að ég geti gert betur. Ef ég hætti einhvern tíma að læra eitthvað nýtt þá verður það dagurinn sem ég hætti.“
Litlu hlutirnir Matur Michelin Menning Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Fleiri fréttir Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Sjá meira