Golf

Á heima­velli og freista þess að ná mont­rétti fjöl­skyldunnar

Aron Guðmundsson skrifar
Systkinin Dagbjartur og Perla Sól Sigurbrandsbörn keppa bæði á Íslandsmótinu í golfi sem hefst í dag.
Systkinin Dagbjartur og Perla Sól Sigurbrandsbörn keppa bæði á Íslandsmótinu í golfi sem hefst í dag. vísir/lýður

Ís­landsmótið í golfi hefst á Korpúlfs­staða­velli í dag. Þar eru syst­kinin Dag­bjartur Sigur­brands­son og Perla Sól Sigur­brands­dóttir á heima­velli og stefna á að bæta við Ís­lands­meistara­titlum í safnið og eigna sér mont­réttinn í fjöl­skyldunni.

Dag­bjartur hefur titil að verja á mótinu á meðan að að Perla Sól stefnir á að reyna vinna sinn annan Ís­lands­meistara­titil, sá eini til þessa kom árið 2022. Heimili fjöl­skyldunnar er stein­snar frá Korpúlfs­staða­velli

Er það meiri pressa sem fylgir því að spila á heima­velli?

„Nei nei ég myndi ekki segja það,“ svarar Dagbjartur. „Það er meiri um­fjöllun og maður vann í fyrra en maður tekur þessu með jákvæðum huga og þetta verður skemmti­leg áskorun.“

Perla Sól tekur undir það:

„Mér finnst þetta bara geggjað. Ég er ótrú­lega spennt. Völlurinn er í geggjuðu standi. Ég er ótrú­lega spennt fyrir þessu.“

Lífið við sjöundu braut

Dagbjartur og Perla Sól hafa alist upp við hlið Korpúlfsstaðavallarins, þekkja hann inn og út. 

„Við erum mikið hérna,“ segir Perla Sól. „Förum oft bara út á kvöldin og spilum þann hluta vallarins sem nefnist sjórinn.“

Það fylgja því ýmsir kostir að búa við Korpúlfsstaðavöllinn. Golf æðið sem hefur runnið á þjóðina hefur ekki farið fram hjá neinum. Ásóknin í rástíma er gífurleg og er Korpúlfsstaðavöllur þar engin undantekning. Þá er gott að geta labbað yfir á völlinn.

„Það er alltaf svo mikið af fólki að spila. Maður þarf aldrei að pæla í bílastæðamálunum,“ segir Dagbjartur.

Það er öllu til tjaldað á Ís­landsmótinu og um­gjörðin eins og best verður á kosið. Fólk hvatt til þess að mæta á völlinn og fylgjast með mörgum af okkar fremstu kylfingum.

Rígur á góðu nótunum

Perla. Dag­bjartur vinnur sinn fyrsta Ís­lands­meistara­titil í fyrra. Þú þekkir það vel að vinna Ís­lands­meistara­titil. Syst­kinin bæði komin með Íslandsmeistaratitla en þið hljótið að ætla bæta í.

„Já. Það er smá keppni á milli okkar.“

Er inn­byrðis rígur?

„Já að sjálfsögðu. Nei.,“ segir Perla Sól kímin.

„Nei nei ekkert ein­hver rígur en bara gaman. Alltaf jafn gaman að styðja hvort annað,“ bætir Dagbjartur svo við.

Eitt högg í einu

Leiðin að Ís­lands­meistara­titli er ströng. Það þarf allt að ganga upp.

„Þetta er alltaf bara það sama. Eitt högg í einu,“ segir Dagbjartur aðspurður hvað þurfi að ganga upp á leiðinni að öðrum Íslandsmeistaratitli. „Gera sitt besta. Maður þarf að fóku­sera á hlutina sem maður getur stjórnað. Rútínu, gott leik­skipu­lag og vera jákvæður yfir þessa fjóra daga. Svo kemur bara í ljós hvernig niður­staðan verður.“

Perla Sól tekur í sama streng.

„Vera þolin­móð. Það er spáð miklum vindi og rigningu. Þolin­móð og hafa gaman að þessu. Það skiptir miklu máli.“

Dagbjartur og Perla Sól hefja leik á Íslandsmótinu í golfi í dag. Dagbjartur á teig klukkan 12:19 en Perla Sól klukkan 09.12. Fylgst verður náið með Íslandsmótinu í golfi á Vísi næstu daga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×