Golf

Frá­bær árangur Evu sem sló met í Banda­ríkjunum

Aron Guðmundsson skrifar
Eva Kristinsdóttir á Íslandsmótinu í golfi árið 2024. Nú reynir hún fyrir sér í háskólagolfinu í Bandaríkjunum
Eva Kristinsdóttir á Íslandsmótinu í golfi árið 2024. Nú reynir hún fyrir sér í háskólagolfinu í Bandaríkjunum Mynd: GSÍ /Seth@golf.is

Eva Kristinsdóttir bætti skólamet Iowa háskólans með frábærum fyrsta keppnisdegi á Illini Women´s Invitational mótinu á Medinah í Bandaríkjunum í gær.

Golfsamband Íslands greinir frá árangri Evu en leiknir voru tveir hringir á fyrsta keppnisdegi, alls 36 holur og lék hún hringina tvo á níu höggum undir pari. 

Með því bætti Eva skólamet Iowa háskólans yfir 36 holur og jafnframt jafnaði hún met skólans fyrir lægsta átján holu skorið. 

Fyrr hringinn lék Eva á sex undir pari, alls 66 höggum og þann síðari á þremur undir pari, 69 höggum.

Tilþrif dagsins hjá Evu komu á þrettándu holu er hún sló í holu af 90 metra færi fyrir erni. 

Eftir fyrsta keppnisdaginn situr Eva í þriðja sæti mótsins í einstaklingsflokki. Iowa háskólin er jafn í tíunda sæti liðakeppni mótsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×