Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. ágúst 2026 12:31 Albert Ingason starfaði einu sinni fyrir Mjólkursamsöluna. Frammistaða KA gegn Keflavík minnti hann á tilburði hans hjá MS. vísir/guðmundur KA tapaði 3-0 fyrir Keflavík í gær og er í harðri fallbaráttu í Bestu deild karla. Albert Ingason segir að leikmenn liðsins hafi nánast kastað inn hvíta handklæðinu í leiknum í gær.
KA fékk á sig þrjú mörk á níu mínútum í fyrri hálfleik gegn Keflavík og var aldrei líklegt til að koma til baka eftir það, jafnvel þótt Keflvíkingar hefðu verið tíu inni á vellinum síðasta hálftímann eftir að Eiður Orri Ragnarsson fékk rautt spjald. Í Stúkunni í gær var rætt um mistök sem Markús Máni Pétursson gerði í þriðja marki Keflavíkur. Albert sagði að vandamálið væri stærra en þessi mistök varnarmannsins unga. „Það er meira að horfa á hvað gerist eftir þetta mark, hvað leikmenn hætta. Bara allir. Ekki bara það að Markús hafi átt einhverja hauskúpuframmistöðu; allt liðið hættir,“ sagði Albert. Klippa: Stúkan - umræða um KA „Það er hægt að tala um stöður og Hallgrímur [Jónasson, þjálfari KA] getur talað um að það sé ótrúlegt að það hafi verið 3-0 miðað við hvernig leikurinn fer af stað. En það er bara ótrúlegt hvað gerist eftir fyrsta markið.“ Nenntu þessu ekki eftir fyrsta markið Alberti finnst ekki mikið til KA-liðsins koma og segir leikmenn þess ekki standa undir nafni. „Við erum búin að sitja hérna og fara mikið yfir hópinn hjá KA-liðinu. Adam Ægir [Pálsson], Jeppe [Pedersen], Hallgrímur [Mar Steingrímsson], Hans Viktor [Guðmundsson], [Samuel] Kroon, [Diego] Montiel, [Danijel Dejan] Djuric. Oliver [Heiðarsson] er náttúrulega meiddur núna en þetta er dýrt lið. Þetta er dýrt lið og ég ætla bara að vona að það sé rangt að þetta sé dýrt lið,“ sagði Albert. „Af því að þessir gæjar, eins og þeir spiluðu í þessum leik, voru að skila jafnmikilli vinnu fyrir KA-liðið í þessum leik og ég gerði í Mjólkursamsölunni á sínum tíma. Og ég var að leggja mig inni á klósettinu. Án gríns. Hvað gerðist þarna eftir 27 mínútna leik eða hvað það var? Ef þessir leikmenn eru með leikjabónus þá á bara ekki að rukka fyrir þennan leik. Þeir bara hættu. Um leið og þeir lentu einu marki undir nenntu þeir þessu ekki.“ KA er í 10. sæti Bestu deildarinnar með fimmtán stig eftir sautján leiki. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu tíu deildarleikjum sínum og ekki skorað í síðustu tveimur leikjum. Næsti leikur KA er gegn FH á heimavelli á sunnudaginn kemur. FH-ingar eru á botni deildarinnar en aðeins einu stigi á eftir KA-mönnum. Umræðuna um KA úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla KA Stúkan Tengdar fréttir „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Albert Ingason varð fyrir miklum vonbrigðum með frammistöðu Breiðabliks í tapinu fyrir Þór í Bestu deild karla. Hann hefur ekki hrifist af Blikum í sumar og segir biðina eftir bikarúrslitaleiknum enga afsökun fyrir slakri spilamennsku. 6. ágúst 2026 08:03 „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Keflavík lyfti sér upp í efri hluta deildarinnar með öflugum 3-0 sigri á KA í kvöld en Sindri Snær Magnússon, sem var fyrirliði Keflavíkur í leiknum, skoraði fyrsta mark leiksins sem breytti heldur betur gangi leiksins. 5. ágúst 2026 21:08 Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Keflvíkingar héldu áfram góðu gengi sínu á grasinu í Keflavík með 3-0 sigri á KA í sautjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. 5. ágúst 2026 19:52 Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn Fleiri fréttir Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Sjá meira
„Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Albert Ingason varð fyrir miklum vonbrigðum með frammistöðu Breiðabliks í tapinu fyrir Þór í Bestu deild karla. Hann hefur ekki hrifist af Blikum í sumar og segir biðina eftir bikarúrslitaleiknum enga afsökun fyrir slakri spilamennsku. 6. ágúst 2026 08:03
„Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Keflavík lyfti sér upp í efri hluta deildarinnar með öflugum 3-0 sigri á KA í kvöld en Sindri Snær Magnússon, sem var fyrirliði Keflavíkur í leiknum, skoraði fyrsta mark leiksins sem breytti heldur betur gangi leiksins. 5. ágúst 2026 21:08
Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Keflvíkingar héldu áfram góðu gengi sínu á grasinu í Keflavík með 3-0 sigri á KA í sautjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. 5. ágúst 2026 19:52