Agla María skaut Breiðablik í forkeppni Evrópubikarsins Andri Broddason skrifar 7. ágúst 2026 09:39 Agla María Albertsdóttir var hetja Breiðabliks í Evrópuleiknum gegn Dinamo Minsk. Vilhelm/Vísir Breiðablik tryggði sig í forkeppni Evrópubikarsins í fótbolta með sigri á Dinamo Minsk í framlengdum leik. Agla María Albertsdóttir tryggði Breiðablik í framlengingu með marki á lokasekúndum leiksins og skoraði aftur í framlengingunni í 3-2 sigri.
Leikurinn hófst klukkan sjö að íslenskum tíma en klukkan tólf að hádegi í Kasakstan þar sem leikurinn var spilaður. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Blikana þegar Anna Pilipenko kom Dinamo Minsk yfir á fjórtándu mínútu. Það voru vandræði í vörn Blika sem endaði með því að Piplenko vann boltann og kom boltanum fram hjá Herdísi Höllu Guðbjartsdóttur í marki Breiðabliks. Stuttu eftir markið virðist vera einhver pirringur í Hönnu Siniauskaya, leikmanni Dinamo Minsk, því hún reif í hárið á Edith Kristínu Kristjánsdóttur og fékk að launum beint rautt spjald. Breiðablik var því orðið manni fleiri og átti betri möguleika á því að jafna leikinn en staðan í hálfleik var áfram 1-0. Í hálfleik gerði Breiðablik þrefalda skiptingu sem hleypti miklu lífi í leik Breiðabliks. Strax í byrjun leiksins byrjaði íslenska liðið að sækja af miklum krafti og fékk liðið hornspyrnu sem varamaðurinn Agla María Albertsdóttir tók. Þar náði Karitas Tómasdóttir að stanga boltann inn og jafna metin. Breiðablik náði ekki að bæta við öðru marki en hélt áfram ákefðinni í sóknarleiknum. Vörnin var þó fullslök og eftir misskilning í vörninni var Anna Piplenko aftur mætt að refsa og kom Dinamo Minsk aftur í forystuna. Við það að lenda aftur undir róaðist leikurinn aðeins og bæði lið voru orðin verulega þreytt. Aðeins fimm leikmenn voru á bekknum hjá Breiðablik og þurfti varamarkmaðurinn Taylor Kane að spila frammi fyrir Breiðablik. Svo virtist sem Breiðablik væri búið að tapa leiknum en í síðustu sókn leiksins datt boltinn til Öglu Maríu og náði hún að jafna leikinn á lokasekúndum leiksins. Því var ljóst að framlengja þurfti leikinn. Agla María Albertsdóttir hélt áfram að vera hetja Breiðabliks í framlengingunni en hún skoraði eftir frábæra fyrirgjöf frá Karitas Tómasdóttir. Breiðablik fékk því langþráða forystu í leiknum þegar tæpar 20 mínútur voru eftir. Liðið frá Belarus náði ekki að skora annað mark og tryggði Breiðablik frábæran sigur 3-2, sigur á Dinamo Minsk. Með sigrinum tryggði liðið sig í forkeppni Evrópubikarsins en þar verður dregið á þriðjudaginn.
Breiðablik Evrópubikar kvenna í fótbolta Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira