Evrópubikar kvenna í fótbolta

Fréttamynd

Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úr­slitin

Diljá Ýr Zomers var á skotskónum í kvöld þegar Brann tryggði sig áfram í Evrópubikar kvenna í fótbolta. Liðið vann leik kvöldsins 4-0 og viðureignina samtals 6-0. Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir, leikmenn Vålerenga, unnu Feyenoord á heimavelli 2-1 en töpuðu viðureigninni samtals 3-5. Rosenborg náði að vinna viðureignina gegn Slovan Liberec á 5-4.

Fótbolti
Fréttamynd

„Skortur á ein­beitingu og svo bara hrynur þetta“

„Ég veit ekki við hverju við bjuggumst. Á þessu stigi keppninnar eru öll liðin hörkugóð og við fengum að finna fyrir því í dag,“ sagði Kristín Dís Árnadóttir eftir áfallið sem Breiðablik varð fyrir með 6-2 tapi á heimavelli gegn pólsku meisturunum í Czarni í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Ætla að refsa sigursælasta liði Pól­lands

Þórdís Elva Ágústsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er kokhraust fyrir komandi Evrópuleik liðsins gegn pólsku meisturunum í liði Czarni Sosnowiec í Evrópubikarnum í dag. Ekki sé tilefni til að stíga af bensíngjöfinni núna.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Sjáum veik­leika í þeirra leik“

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, sér veikleika í pólsku meistaraliði sem Breiðablik tekur á móti í 32-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í fótbolta í dag. Blikar munu reyna að nýta sér þá.

Fótbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafn­firðinga heldur á­fram

Apollon lagði FH-inga á heimavelli FH í fyrstu umferð í undankeppni Evrópubikar kvenna í fótbolta. Um var að ræða seinni leik liðanna í tveggja leikja einvígi sem sker úr hvort liðanna tryggir sér sæti í næstu umferð Evrópubikarsins. FH-ingar sigruðu fyrri leikinn sem fór fram í Kýpur 2-0 og gengu því til leiks með tveggja marka forskot. Þrátt fyrir sigur Apollon hér í dag dugði það ekki til þess að snúa við forskoti FH-inga og því halda FH áfram í næstu umferð undankeppninnar í evrópukeppninni.

Fótbolti
Fréttamynd

Reddaði Blikum en þurfti svo að vera í stúkunni

Eva Ýr Helgadóttir brást vel við þegar Breiðablik leitaði til hennar í markvarðakrísu fyrir Evrópuleikina við Svíþjóðarmeistara Häcken. Hún var mætt til Svíþjóðar og búin að hita upp þegar henni var svo óvænt tjáð að hún mætti ekki vera í leikmannahópnum.

Fótbolti
  • «
  • ‹
  • 1
  • 2
  • ›