Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2026 18:02 Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er að spila frábærlega á heimavelli. GSÍmyndir Heimamaðurinn og ríkjandi Íslandsmeistari í golfi fylgdi eftir frábærum fyrsta degi með öðrum góðum hring í dag í rigningunni á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli.
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er kominn með fimm högga forystu eftir að hafa leikið fyrstu tvo daga Íslandsmótsins á átta höggum undir pari. Hann lék annan daginn á 68 höggum eða þremur höggum undir pari, fékk fimm fugla og tvo skolla. Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur deila öðru sætinu á þremur höggum undir pari samanlagt. Kristján Karl lék á einu höggi undir pari í dag en Tómas kláraði hringinn á pari. Kristján Karl fékk reyndar tvo skolla á fyrstu þremur holunum en kom sterkur til baka eftir það. Tómas var með þrjá fugla á fyrstu sjö holunum en fékk svo þrjá skolla á restinni af hringnum. Sigurður Bjarki Blumenstein úr Golfklúbbi Reykjavíkur er fjórði á tveimur höggum undir pari en hann lék á pari í dag. Sigurður Bjarki fékk tvöfaldan skolla á tólftu og skolla á sextándu og hefði því getað endað daginn betur. Halldór Jóhannsson úr Golfklúbbnum Keili er fimmti á einu höggi undir pari en Halldór lék best allra í dag eða á fjórum höggum undir pari í dag, fékk fimm fugla og aðeins einn skolla. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss er á parinu og deilir sjötta sætinu með Aroni Snæ Júlíussyni úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og það þrátt fyrir að hafa tapað fjórum höggum á síðustu þremur holunum.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira