Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2026 20:16 Halldór Jóhannsson hélt upp á fimmtán ára afmælið sitt í apríl síðastliðnum. @gsigolf Hinn bráðefnilegi Halldór Jóhannsson úr Golfklúbbnum Keili lék best allra kylfinga á öðrum keppnisdegi Íslandsmótsins í golfi sem fram fór á Korpúlfsstöðum í dag.
Halldór lék hringinn á 67 höggum, fjórum höggum undir pari, í krefjandi aðstæðum en það var afar blautt í dag. Keilismaðurinn fékk fimm fugla og einn skolla á hringnum. Hann situr nú í fimmta sæti karlaflokksins á einu höggi undir pari þegar mótið er hálfnað. Halldór er fæddur í apríl 2011 og verður því ekki sextán ára fyrr en næsta vor. Á fyrsta hringnum í gær byrjaði Halldór af krafti með því að ná þremur fuglum á fyrri níu en það gekk ekki nógu vel á þeim seinni níu og hann endaði fyrsta hringinn á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari. Halldór lét það ekki buga sig heldur byrjaði í dag með tveimur fuglum á fyrstu þremur holunum og alls var hann með þrjá af fuglunum sínum á fyrri níu. Enginn annar kylfingur náði að leika á fjórum höggum undir pari í dag en Dagbjartur Sigurbrandsson sem er í forystu og þeir Kristófer Orri Þórðarson og Veigar Heiðarsson léku báðir á þremur höggum undir pari. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Íslandsmótið í golfi Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira