„Mér líður frábærlega“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 22:31 Andri Lucas Guðjohnsen fagnar marki sínu fyrir Blackburn Rovers í leiknum á móti Burton Albion um helgina. Getty/Andrew Kearns Andri Lucas Guðjohnsen og félagar í Blackburn Rovers eru að hefja tímabil í ensku B-deildinni og Andri minnti á sig um helgina.
Andri Lucas skoraði þá gott mark í 2-1 sigri á Burton Albion í enska deildabikarnum. Markið kom á 81. mínútu leiksins og jafnaði metin í 1-1. Andri skoraði þar með skalla af stuttu færi en markið má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Blackburn Rovers (@rovers) Það er gott að sjá íslenska landsliðsframherjann finna markaskóna á ný eftir mikinn vonbrigðaendi á síðustu leiktíð. Eftir leikinn var Andri Lucas tekinn í viðtal á miðlum Blackburn Rovers. „Ég ætla mér að skora. Ég fer inn í hvern einasta leik og hugsa bara að ég vilji skora eitt, tvö eða þrjú mörk. Bara reyna að vera alltaf inni í teignum og þegar við erum í sókn, þegar við erum hátt uppi á vellinum, taka hlaupin, vera alltaf á hreyfingu. Þannig að ég veit að ég er tilbúinn þegar tækifærið gefst,“ sagði Andri Lucas. Andri var kominn með sjö mörk í fyrstu sautján leikjunum í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð þegar hann meiddist aftan í læri um jólin. Hann snéri aftur en meiddist á ökkla í mars og missti af síðustu tíu deildarleikjum tímabilsins. Viðtalsmaðurinn forvitnaðist um það hvernig Andra liði líkamlega en hann varð fyrir ökklameiðslum í vor og missti af lokum tímabilsins. Hann er að komast í gang en líður honum vel? „Já, mér líður frábærlega. Mér finnst ég hafa haft góð áhrif í dag. Ég sýndi mig með hreyfingum mínum og ég byrjaði bara nokkuð vel. Ég er virkilega ánægður með markið mitt í dag en líka bara með samspilið og einvígin sem ég fór í. Þannig að ég er bara virkilega ánægður með hvernig mér líður almennt,“ sagði Andri eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Blackburn Rovers (@rovers)
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira