Guðrún Karítas í úrslit og Elísabet nálægt því Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 20:40 Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir komst í kvöld í úrslit í sleggjuasti á Evrópumótinu í Birmingham. Getty/Patrick Smith Ísland átti tvo keppendur í undankeppni sleggjukasts kvenna á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Birmingham í Englandi í kvöld en aðeins önnur þeirra komst í úrslit.
Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir tryggði sér sæti í úrslitum með 70,31 metra kasti í fyrstu tilraun. Þetta var sjötta lengsta kastið í undankeppninni en það þriðja lengsta í hennar riðli. Eftir þetta flotta fyrsta kast var Guðrún í mjög góðum málum en hin köstin hennar voru upp á 69,70 metra og 66,15 metra. Annað lengsta kastið hefði því líka skilað henni í úrslitin. Elísabet Rut Rúnarsdóttir hafði áður keppt í fyrri riðlinum og kastað þar lengst 67,50 metra. Hún varð sjötta í sínum riðli en það mátti sjá á svip hennar eftir misheppnað síðasta kast að sætið í úrslitunum hefði líklegast runnið frá henni. Elísabet var samt lengi í hópi tólf efstu en datt úr í síðustu umferðinni og endaði í fjórtánda sæti. Allar nema ein fyrir ofan hana komust því í úrslit. Hún hefði samt þurft að kasta næstum því metra lengra til að komast í tólf manna úrslit. Guðrún hafði kastað yfir sjötíu metra í ellefu af fjórtán keppnum sínum á árinu og setti líka Íslandsmet með því að kasta 73,88 metra. Elísabet varð bandarískur háskólameistari í júní þegar hún kastaði 73,19 metra og tryggði sér sinn annan NCAA-titil í sleggjukasti. Hún var því nokkuð frá sínu besta í kvöld. Úrslitin í sleggjukasti kvenna fara fram á miðvikudagskvöldið en annað kvöld keppir Hilmar Örn Jónsson í úrslitum í sleggjukasti karla.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Fótbolti Fleiri fréttir Líkir mótinu við að spila í dýragarði Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Dagskráin: Hörkuleikir í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Alcaraz heldur uppteknum hætti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Varamaður Ómars hetja Magdeburgar „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Skoraði fimmtán mörk Sjá meira