Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 12:09 Kaleo héldu sína fyrstu tónleika á Íslandi síðan 2015. Vísir/Viktor Freyr Jökull Júlíusson, söngvari Kaleo, segist dreyma um að halda næstu stórtónleika á Íslandi á Vestfjörðum. Margir staðir komi til greina en langar hljómsveitarmeðlimina að spila á öllum landsfjórðungunum.
Kaleo stóð fyrir tónleikunum Bergmál núna í sumar á Þingvöllum. Tónleikarnir voru afar vel heppnaðir að mati Jökuls og Davíðs Antonssonar, trommara Kaleo, sem voru í viðtali hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni. „Aðdragandinn var búinn að vera svo langur og það var búið að byggjast upp svo mikil spenna svo mér fannst þetta hálfpartinn ótrúlegt á meðan þetta var að gerast,“ segir Davíð. „Það er svo magnað að fá að vera á þessum stað,“ segir Jökull. „Áður en við spiluðum um kvöldið labbaði ég í gegnum mannfjöldann yfir á litla sviðið og það var svo gaman að sjá fjölskyldurnar saman og krakkana. Þetta var markmiðið mitt að fá Íslendinga til þess að koma sér saman og upplifa menningu í þessum fræga þjóðgarði.“ Vilji hvetja fólk til að ferðast um landið Aðspurðir hvað væri á döfinni á næsta ári segir Jökull sig dreyma um að halda tónleika á öllum landsfjórðungunum. „Það stóð aldrei til að taka svona langa pásu á Íslandi. Við vorum byrjaðir að skipuleggja stóra tónleika en svo kom Covid og seinkaði öllu. Okkur langar að spila meira hérna og vera meira heima,“ segir Davíð. „Við finnum mikið fyrir því hvað fólk kann vel að meta þetta. Minn draumur eins og er er að spila á öllum landsfjórðungunum. Að fara um landið og mig langar að fara vestur næst,“ segir Jökull „Eins og ég segi voru Þingvellir algjörlega einstakir en það var opnað inn og svo lokað. Við værum meira til í að stimpla inn á einhverja upplifun í nokkra daga og ef við erum að fara alla leið vestur að hvetja fólk til þess að nýta ferðina og heimsækja Vestfirði, kynna sér svæðið og kannski stoppa í einhverja daga og ferðast.“ Hann tekur undir að Vestfirðir séu algjörlega einstakir staðir og bætir við að hann hafi sjálfur ferðast þar um á Covid-tímum. „Þjóðarstoltið er mjög sterkt hjá okkur og það eru algjör fríðindi að geta haldið viðburði eins og þess á heimavelli.“
Kaleo Tónlist Þingvellir Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira