Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 23:02 Starfsmaður faðmar hjólreiðamann sem er augljóslega í uppnámi á 8. áfanga portúgalska hjólreiðakappakstursins en breski hjólreiðamaðurinn Finlay Tarling lést í banaslysi á áfanganum, sem var umsvifalaust aflýst í kjölfarið. EPA/NUNO VEIGA Engin opinber skýring hefur komið fram á því hvernig óbreyttur borgari á bíl gat verið á keppnisleiðinni þegar hinn nítján ára velski hjólreiðamaður Finlay Tarling lést í portúgalska hjólreiðakappakstrinum, Volta a Portugal, á föstudag.
Portúgalska lögreglan, GNR, hefur hingað til aðeins staðfest að Tarling hafi lent í árekstri við sendibíl sem ekið var gegn akstursstefnu keppninnar og var ekki hluti af henni. Aðstæður eru enn í rannsókn. TV2 fjallar um málið. Imágenes del accidente del británico Finlay Tarling en la que murió en la 8ª etapa de la Volta a Portugal tras chocar con una furgoneta Renault Kangoo que iba en sentido contrario La furgoneta quedó con ventanas rotas y la bicicleta completamente destruidaFuente: CNN Portugal pic.twitter.com/bfbZfHKrgw— Avituallamiento Ciclista (@EVTMO_) August 14, 2026 Samkvæmt spænsku miðlunum AS og Cadena SER, og þeim portúgalska A Bola, hunsaði ökumaður bílsins fyrirmæli öryggisvarða, en sú útlegging hefur ekki verið staðfest opinberlega. Portúgalski miðillinn Correio da Manhã skrifar hins vegar að ökumaðurinn hafi stöðvað vegna keppninnar en hafi ekið aftur af stað þar sem viðkomandi taldi að allir keppendur væru komnir fram hjá. Blaðið bendir jafnframt á að staðsetning aftasta bíls keppninnar í samanburði við stöðu Finlay á leiðinni sé lykilatriði í rannsókninni, þar sem Tarling virðist enn hafa átt að vera innan öryggissvæðis keppninnar þegar slysið varð, en hugsanlega gæti bíllinn sem á að gefa til kynna að vegurinn sé aftur opinn fyrir almennri umferð hafa farið fram úr honum. We are heartbroken to announce the passing of Finlay Tarling at the Volta a Portugal today. Fin was a much loved member of our team but most importantly, he was a son, a brother, and a friend to so many. He will be deeply missed. (1/2) pic.twitter.com/PI3uWkPmvC— NSN Cycling Team (@NSNCyclingTeam) August 14, 2026 Lið Finlay Tarlings, NSN Development Team, hætti keppni í Volta a Portugal. Þetta staðfesti liðið á X eftir að portúgalska sjónvarpsstöðin RTP greindi frá því á föstudagskvöld. Á sama tíma tilkynnir NSN að World Tour-lið samtakanna muni halda áfram keppni í þeim áfangakeppnum sem þau taka þátt í um þessar mundir. „Með fullum stuðningi foreldra Fins mun WorldTour-liðið halda áfram keppni í Czech Tour og Arctic Race of Norway. Við munum áfram bera Fin í hjörtum okkar og keppa honum til heiðurs þegar við gerum það sem hann elskaði mest. Við viljum þakka öllum innan og utan hjólreiðaíþróttarinnar fyrir ótrúlegan stuðning á þessum erfiðu tímum.“
Hjólreiðar Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira