Magnus Carlsen varði titilinn á HM í rafíþróttum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 17:26 Magnus Carlsen bætti við enn einum heimsmeistaratitlinum á ferilskrána í dag. Getty/Yu Chun Christopher Wong Norski stórmeistarinn Magnus Carlsen sigraði á skákmótinu á heimsmeistaramótinu í rafíþróttum í annað sinn þegar hann gjörsigraði hinn unga Hvítrússa Denis Lazavik í París í úrslitaleik í dag.
Carlsen vann 3-1 í báðum fyrstu tveimur settunum og þar með var einvíginu lokið. Hann lenti aldrei í vandræðum gegn ungum andstæðingi sínum og vann sigur með nokkuð yfirburðatölum. MAGNUS CARLSEN WINS THE ESPORTS WORLD CUP AGAIN 🏆🏆After another legendary undefeated run, @MagnusCarlsen adds to his 2025 title with a 2-0 (3-1, 3-1) Grand Final victory against Denis Lazavik! 🔥 pic.twitter.com/Nwy1zE3XYH— Chess.com (@chesscom) August 15, 2026 Norðmaðurinn hefur unnið titilinn í bæði skiptin sem HM í rafíþróttum í skák hefur verið haldið. Fyrir sigurinn í París fékk hann bikar og verðlaunaávísun upp á 250.000 dollara eða næstum því 31 milljón íslenskra króna. „Það er skemmtilegt að allir skákmennirnir sem ég hef mætt á mótinu eru fæddir eftir árið 2000. Ég sagði fyrirfram að hann væri ekki sérstaklega góður í að verjast í hróksendatöflum, og það réði úrslitum í fyrsta settinu. Svo hélt ég þessu þéttu, ég reyndi að gefa honum ekki of mörg augljós yfirburðatækifæri og nýtti þau færi sem ég fékk,“ sagði Carlsen í sigurviðtali við mótshaldara. Feeling good! It’s nice to show that the old guard still knows how to move the pieces. pic.twitter.com/e3nfKQbXeq— Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) August 15, 2026 Hinn sigursæli Norðmaður var einnig spurður hver gæti stöðvað hann. „Ég veit það ekki. Í þessu keppnisfyrirkomulagi held ég að það sé ekki svo auðvelt, allavega ekki á þessum tímapunkti,“ svaraði Carlsen. Hinn 35 ára gamli Magnus Carlsen hefur unnið fjölda heimsmeistaratitla á ferlinum hvort sem það er í hefðbundinni skák, atskák, hraðskák, frjálsri skák eða öðrum skákformum. Hann hefur unnið meira en 20 heimsmeistaratitla, þar á meðal fimm í hefðbundinni skák á sínum goðsagnakennda ferli. Eins og er er hann ríkjandi heimsmeistari í bæði atskák, hraðskák og frjálsri skák. BACK-TO-BACK CHESS AT EWC CHAMPION @MagnusCarlsen The winning moment ⤵️ pic.twitter.com/wbkJ6ulpfv— EWC Extra (@EWC_Extra) August 15, 2026
Skák Rafíþróttir Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Sjá meira