Sport

Sá besti vann þrátt fyrir heimsku­lega á­kvörðun: „Ekki borða tikk­a masala“

Aron Guðmundsson skrifar
Enn ein gullverðlaun Duplantis. Hann hefur nú fjórum sinnum orðið Evrópumeistari, þrisvar sinnum heimsmeistari og í tvígang hefur hann orðið Ólympíumeistari.
Enn ein gullverðlaun Duplantis. Hann hefur nú fjórum sinnum orðið Evrópumeistari, þrisvar sinnum heimsmeistari og í tvígang hefur hann orðið Ólympíumeistari. Vísir/EPA

Sænski stangar­stökkvarinn Armand Du­plantis vann sín þrettándu gull­verð­laun í röð á stór­móti er hann stökk hæst á EM í frjálsum íþróttum í Birming­ham í gær og setti nýtt móts­met. Armand til­einkaði ömmu sinni, sem lést í júlí, gull­verð­launin en bölsótaðist svo út í val sitt á veitingastað fyrir keppni sem olli því að kló­settið varð hans besti vinur.

Það var stökk upp á sex metra og fimmtán sentí­metra sem tryggði Du­plantis enn einn Evrópu­meistara­titilinn og er þetta í fjórða sinn í röð sem hann vinnur þann titil. Hann setti um leið móts­met með stökkinu.

„Gullið til­einka ég ömmu minni,“ sagði Du­plantis í viðtali við SVT Sport eftir keppni í gær en hún lést, 92 ára gömul, í síðasta mánuði.

Du­plantis sagði síðustu vikur fyrir mót hafa verið stressandi fyrir sig. Hann var bara ánægður með að hafa geta mætt til leiks og tekið gullið. Svíinn er fyrsti stangar­stökkvarinn í sögunni til þess að vinna fjögur Evrópumót.

„Ég var að glíma við smá hnjask fyrir nokkrum vikum og vildi því farra var­lega. Þetta var nóg fyrir mig núna,“ sagði Du­plantis sem hefði geta reynt við enn eitt heims­metið en kaus að gera það ekki. Du­plantis hefur alls fimmtán sinnum bætt heims­metið í stangar­stökki.

Þá var það ekki til að auðvelda hlutina fyrir Du­plantis að hann fékk í magann skömmu fyrir keppni eftir að hafa borðað ind­verskan mat á veitingastað sem fór illa í hann.

„Þetta er það heimsku­legasta sem ég hef gert í lífinu,“ sagði Du­plantis við Aftonbladet. „Ég get ekki skilið það af hverju ég valdi að fá mér ind­verskan mat fyrir keppni... Ég er búinn að vera á kló­settinu í allan dag. Ég hélt þetta yrði ekki svona slæmt.“

Hann hefði átt að sjá þetta fyrir.

„Ekki borða tikk­a masala fyrir keppni. Það er mitt ráð til ykkar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×