Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Andri Broddason skrifar 17. ágúst 2026 21:50 Þróttur situr á toppi Lengjudeildar karla eftir sigur á Fylki í kvöld. Þróttur Þróttur situr á toppi Lengjudeildar karla eftir sigur á Fylki í kvöld. Á sama tíma gerði Afturelding jafntefli við HK.
Þróttur tók á móti Fylki á Pepsi-vellinum sem er nýtt nafn Þróttarvallarins. Sigurður Egill Lárusson kom Þrótturum yfir strax á sjöttu mínútu eftir frábært skot fyrir utan teig. Á 29. mínútu tvöfaldaði Aron Snær Ingason forystu Þróttara og stóðu leikar þannig í hálfleik. Í seinni hálfleik minnkar Eyþór Aron Wöhler metin fyrir Fylki og strax komin pressa á Þróttara. Þeir náðu þó að standast pressuna og tryggðu 3-1 sigur á 86. mínútu þegar Magnús Þórðarson slapp inn fyrir vörn Fylkis. Viðburðaríkt jafntefli Á sama tíma mættust Afturelding og HK í Mosfellsbænum þar sem Óðinn Bjarkason kom Aftureldingu í forystuna strax á níundu mínútu. Sú forysta entist þó ekki lengi því Breki Hólm Baldursson jafnaði metin með frábæru skoti fyrir utan teig. Undir lok hálfleiksins fékk Afturelding víti eftir að boltinn fór í höndina á Aroni Kristófer Lárussyni og fór Aron Elí Sævarsson á punktinn fyrir Aftureldingu. Honum mistókst þó að skora þar sem Ólafur Örn Ásgeirsson varði vel í marki HK og liðin fóru jöfn til búningsherbergja í hálfleik. HK náði forystu leiksins á 57. mínútu þegar Viktor Helgi Benediktsson skallaði aukaspyrnu Atla Hrafns Andrasonar í markið. Hvorugt liðið gat þó haldið lengi í sína forystu þar sem Afturelding jafnaði metin á 60. mínútu. Þar skoraði Haukur Örn Brink eftir góða skyndisókn. Í lokin reyndu bæði lið allt sem þau gátu til að sækja sigur og komu færi á báða bóga en inn vildi boltinn ekki. Leikurinn endaði því með 2-2 jafntefli sem gerir vítaklúður Aftureldingar dýrara. Þróttur náði því að taka efsta sæti Lengjudeildarinnar en liðið er með eins stigs forystu á Aftureldingu í öðru sætinu. Afturelding hefur þó spilað einum leik færra og getur nýtt hann til að endurheimta toppsæti deildarinnar. Fylkir er í þriðja sætinu aðeins tveimur stigum frá Aftureldingu og HK í því fjórða. Það er því mjög þéttur pakki á toppi deildarinnar og skiptir hvert stig máli. Upplýsingar um markaskorara og tímasetningar voru fengnar af fótbolti.net.
Lengjudeild karla Íslenski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Sjá meira