„Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 09:29 Gylfi Þór Sigurðsson spilar alla leiki fyrir Víkinga og langoftast allar 90 mínúturnar. vísir/Anton Baldur Sigurðsson gat ekki orða bundist eftir frammistöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar með Víkingi um helgina í 4-2 sigrinum gegn FH í Kaplakrika. Gylfi skoraði þar frábært mark eftir góðan sprett, eftir gríðarlegt leikjaálag að undanförnu.
Á rétt rúmum mánuði, eða frá 14. júlí til 16. ágúst, hefur Gylfi spilað tíu leiki í byrjunarliði Víkings og nánast alltaf allar 90 mínúturnar. Á þessum tíma hefur Víkingur ferðast tvisvar sinnum til Ungverjalands og einu sinni til Sviss, sem og til Akureyrar og Vestmannaeyja. „Það er örugglega búið að tala um þetta oft en hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ sagði Baldur í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gærkvöld, en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Stúkan - Umræða um Gylfa „Hann [Gylfi] er 36 ára en spilar 16. ágúst við FH í 90 mínútur, 13. ágúst við Thun í 90 mínútur, fjórum dögum fyrr úti í Eyjum í 90 mínútur, þremur dögum áður úti í Sviss gegn Thun í 90 mínútur, og svona gæti ég haldið lengi áfram. Þetta er ótrúlegt,“ sagði Baldur og bætti við sposkur: „Þegar ég var 36 ára var ég með Fjölni og var með klakapoka á hnjánum í tvo daga eftir leik.“ „Hann er ekki bara inni á vellinum, hann er að stýra leikjunum,“ skaut þá Kjartan Atli Kjartansson inn í. „Að sjá formið hans. Krafturinn í honum. Spretturinn þegar hann skorar. Hann er bara fyrirmynd. Svona gerist ekki á einni nóttu heldur með því að hugsa vel um sig eins og hann gerir pottþétt,“ sagði Baldur og Albert Brynjar Ingason bætti þá við: „Það er erfitt að verja titilinn en það er auðveldara með mann eins og Gylfa inni í klefa.“
Víkingur Reykjavík Stúkan Besta deild karla Tengdar fréttir Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Glæsileg mörk litu dagsins ljós í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, þegar þrír leikir fóru fram í 19. umferðinni, og má sjá þau á Vísi. 17. ágúst 2026 08:30 Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ Sjá meira
Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Glæsileg mörk litu dagsins ljós í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, þegar þrír leikir fóru fram í 19. umferðinni, og má sjá þau á Vísi. 17. ágúst 2026 08:30