Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Árni Sæberg skrifar 18. ágúst 2026 16:16 Ráðhús Reykjavíkur stendur við Reykjavíkurtjörn. Vísir/Vilhelm Frá því um miðjan maí hafa þeir sem bíða eftir að ná sambandi við þjónusturáðgjafa Reykjavíkur heyrt lög í stað í hefðbundinnar biðtónlistar. Tvö lög urðu fyrir valinu og óhætt er að fullyrða að þau eigi vel við. Það eru Við Reykjavíkurtjörn, lag Gunnars Þórðarsonar við texta Davíðs Oddssonar, og Fröken Reykjavík, lag Jóns Múla Árnasonar við texta Jónasar Árnasonar, bróður hans.
Fréttastofa átti erindi við Reykjavíkurborg í morgun og var bent á að heyra í þjónustuverinu. Þá tók við hefðbundin bið en hún var þó aðeins frábrugðin biðinni síðast þegar blaðamaður hringdi. Í stað hefðbundinar biðtónlistar, sem einnig mætti kalla lyftutónlist, hljómaði Við Reykjavíkurtjörn. Blaðamaður velti þá fyrir sér ástæðunni fyrir breytingunni, hvort hún tengdist ef til vill andlátum höfunda lags og texta eða jafnvel valdatöku Sjálfstæðismanna í borginni. Miðað við svar borgarinnar við fyrirspurn Vísis vegna breytingarinnar tengist hún engu ofangreindu. Þar segir að frá ársbyrjun 2026 hafi stjórnendur í framlínu Reykjavíkurborgar unnið að því að bæta upplifun þeirra sem bíða eftir að ná sambandi við þjónusturáðgjafa. Í því samhengi hafi verið ákveðið að taka upp tónlist á biðlínu í stað hefðbundinnar biðtónlistar. Samningur um notkun tónlistar á biðlínum hafi verið gerður við STEF 29. apríl 2026. Þegar samningur og tæknileg útfærsla lágu fyrir, um miðjan maí 2026, hafi lögin Við Reykjavíkurtjörn og Fröken Reykjavík verið tekin í notkun á reynslutímabili. Framlína Reykjavíkur greiði árgjald fyrir notkun íslenskrar tónlistar í biðtónum á símalínum. Gjaldið nemi 80.659 krónum til STEFs og 48.396 krónum til SFH (Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda), eða samtals 129.055 krónum á ári.
Tónlist Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira