Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. ágúst 2026 19:49 Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir t.h. tók við formennsku í velferðarráði af Sönnu Magdalenu Mörtudóttur t.v. Vísir/Samsett Sanna Magdalena Mörtudóttir segir Ragnheiði Öldu Vilhjálmsdóttur sjálfa hafa greitt atkvæði með samningnum ófjármagnaða um máltíðir íbúa í þjónustuíbúðum og í félagsmiðstöðvum aldraðra. Ragnhildur Alda hafi verið fullmeðvituð um stöðuna.
Greint var frá því í gær að verð á máltíðum afgreiddum af Reykjavíkurborg í heimsendingu, til íbúa í þjónustuíbúðum og í félagsmiðstöðvum aldraðra muni hækka um allt að sjötíu prósent. Aðspurð sagði Ragnhildur Alda, sem tók við formennsku í velferðarráði af Sönnu Magdalenu, að gjaldhækkunin hafi aðeins verið viðbragð við óráðsíu fyrri meirihluta. Alltaf sama sagan Í viðtali við fréttastofu sagðist hún hafa orðið fyrir áfalli þegar hún komst á snoðir um vinnubrögð borgarstjórnarmeirihlutans sem var hefðu verið í málum sem þessum. „Þessi vinnubrögð voru alls staðar, við erum á fullu að vinda ofan af því að það voru gerðir samningar sem voru ekki fjármagnaðir.“ „Allt þetta er eitthvað sem fyrri meirihluti, sem bjó til þennan samning og lét ekki peninginn fylgja með, vissi í hvað stefndi og gerði ekki neitt... [É]g er svo reið. Þetta er alltaf sama sagan, þú veist, þetta lendir bara á gamla fólkinu,“ sagði hún. Lágmark að fjármagna gerða samninga Í færslu sem Sanna Magdalena birti á samfélagsmiðlum segir hún að ætli Ragnhildur Alda að saka aðra borgarfulltrúa um slæm vinnubrögð ætti hún sjálf að fylgjast með því hvað hún samþykki. „Núverandi formaður velferðarráðs hefur lengi verið fulltrúi í velferðarráði og hefur setið fundi þar sem málefni máltíðaþjónustunnar hafa verið til umræðu. Þá samþykkti fulltrúinn á velferðarráðsfundi 4. mars 2026 umræddan samning þar sem áætlaður kostnaður lá fyrir (þetta sést í fundargerð velferðarráðs frá 4. mars 2026 - lið 2 og fundargerð velferðarráðs frá 6. maí 2026 - lið 6). Þá var málið einnig tekið fyrir degi síðar á fundi borgarráðs þann 5. mars þar sem allir í borgarráði greiddu atkvæði með samningnum sem er til umfjöllunar, þ.m.t. núverandi formaður velferðarráðs og núverandi borgarstjóri,“ skrifar Sanna. Í athugasemd svarar Ragnhildur Alda og segist að sjálfsögðu hafa samþykkt samninginn, enda hafi þurft að útvega íbúum þjónustuíbúða mat. „En þá er líka lágmark að láta nægjanlegt fjármagn fylgja með. Ekki gera samning sem kostar 560 milljónir en láta bara 260 milljónir fylgja. Til samanburðar þá fullfjármögnuðuð þið samninginn í mötuneyti starfsfólks, bara ekki matinn fyrir gamla fólkið. Sem segir allt sem segja þarf,“ segir hún.
Reykjavík Borgarstjórn Eldri borgarar Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Sjá meira