Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 22:04 Efstu þrjú sætin skipa Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar og Halla Björk Reynisdóttir, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar á Akureyri. Samsett Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, er efst á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu sveitarstjórnarmenn á síðasta ári. Hún var þá með rúmlega þrjár og hálfa milljón króna í laun á mánuði. Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í gær. Auk þess að vera formaður bæjarráðs var Halldóra starfandi bæjarstjóri Reykjanesæjar út ágúst 2025. Annar á eftir Halldóru er Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar með 3,4 milljónir á mánuði. Naumt er á milli þriðja, fjórða, fimma og sjötta sætis listans en þau voru öll með rúmlega 3,1 milljón á mánuði í tekjur. Halla Björk Reynisdóttir, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar á Akureyri, er í þriðja sæti og fjórða sætið vermir Valdimar Víðisson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Sá fimmti í röðinni er Jakob Björgvin S. Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, öll þrjú með 3,1 milljón. Valdimar Víðisson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði var með 3,1 milljón á mánuði í fyrra. Þórður Þórarinsson tók við starfinu í maí á þessu ári. Vísir/Vilhelm Sjötta í röðinni er Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, einnig með 3,1 milljón og næst á eftir henni er Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi með 2,9 milljónir. Áttundi er Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, með 2,9 milljónir, Ásthildur Sturludóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Akureyrar, er níunda á lista með 2,8 milljónir í laun á mánuði. Tíundi er Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar, með 2,8 milljónir, en hann gegndi embættinu til ársins 2022 þegar Almar fyrrnefndur tók við af honum. Rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Tekjur Sveitarstjórnarmál Rekstur hins opinbera Kjaramál Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í gær. Auk þess að vera formaður bæjarráðs var Halldóra starfandi bæjarstjóri Reykjanesæjar út ágúst 2025. Annar á eftir Halldóru er Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar með 3,4 milljónir á mánuði. Naumt er á milli þriðja, fjórða, fimma og sjötta sætis listans en þau voru öll með rúmlega 3,1 milljón á mánuði í tekjur. Halla Björk Reynisdóttir, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar á Akureyri, er í þriðja sæti og fjórða sætið vermir Valdimar Víðisson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Sá fimmti í röðinni er Jakob Björgvin S. Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, öll þrjú með 3,1 milljón. Valdimar Víðisson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði var með 3,1 milljón á mánuði í fyrra. Þórður Þórarinsson tók við starfinu í maí á þessu ári. Vísir/Vilhelm Sjötta í röðinni er Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, einnig með 3,1 milljón og næst á eftir henni er Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi með 2,9 milljónir. Áttundi er Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, með 2,9 milljónir, Ásthildur Sturludóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Akureyrar, er níunda á lista með 2,8 milljónir í laun á mánuði. Tíundi er Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar, með 2,8 milljónir, en hann gegndi embættinu til ársins 2022 þegar Almar fyrrnefndur tók við af honum. Rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Sveitarstjórnarmál Rekstur hins opinbera Kjaramál Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira