Fótbolti

Hlín og Guð­rún skildu jafnar í toppslagnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðrún Arnardóttir var í vörninni hjá Hammarby.
Guðrún Arnardóttir var í vörninni hjá Hammarby. hammarby

Hlín Eiríksdóttir og Guðrún Arnardóttir mættust í stórleik Malmö og Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðin skildu jöfn, 1-1, eftir spennandi leik á Eleda Stadion.

Guðrún var í byrjunarliði Hammarby í vörninni og Hlín sömuleiðis í byrjunarliði Malmö. Þær íslensku voru því hvor sínum megin í einum áhugaverðasta leik 15. umferðarinnar.

Hammarby byrjaði af miklum krafti og komst yfir strax á annarri mínútu þegar Emilija Petrovic varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark.

Gestirnir voru sterkari í fyrri hálfleik. Malmö kom hins vegar mun ákveðnara til leiks eftir hlé og náði að jafna metin á 55. mínútu þegar Amy Sayer skoraði.

Malmö hélt áfram að sækja eftir jöfnunarmarkið en tókst ekki að finna sigurmarkið. Hammarby þurfti því að sætta sig við eitt stig þrátt fyrir að hafa verið með yfirhöndina lengst af í fyrri hálfleik.

Hammarby var í öðru sæti fyrir leikinn og Malmö í því þriðja. Hammarby hafði unnið 12 af fyrstu 14 leikjum sínum en Malmö hafði unnið sjö og gert fjögur jafntefli fyrir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×