De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2026 19:47 Roberto De Zerbi niðurlútur á hliðarlínunni í leik Brentford og Tottenham. getty/Gaspafotos Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, sagði að sínir menn hefðu ekki verið klárir í baráttuna gegn Brentford í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Spurs tapaði leiknum, 3-0. „
Við áttum erfitt uppdráttar líkamlega en við vissum það fyrir leikinn. Við vorum ekki tilbúnir að berjast í einvígjunum. Við gerðum mörg mistök í tímasetningu pressunnar með Mikey Moore. Við vorum of oft seinir og töpuðum of mörgum einvígjum til að keppa við Brentford,“ sagði De Zerbi eftir leikinn. „Ég er vonsvikinn með tapið. Ég veit að við þurfum að bæta líkamlegt ástand okkar og skipulagið. Það voru margir nýir leikmenn í dag en þetta var fyrsti leikurinn okkar. Þetta er hluti af vegferðinni okkar. Með marga nýja leikmenn vissum við að við þyrftum sál og leikstíl til að verða að liði. Í dag var sálin til staðar en við börðumst ekki á réttan hátt.“ Muna eftir síðasta tímabili De Zerbi var spurður nánar út í það af hverju hans menn hefðu ekki verið tilbúnir í slaginn í dag. „Ég hef trú á leikmönnum mínum. Sérstaklega í fyrri hálfleik vorum við ekki á réttum stöðum til að pressa rétt. Ef þú greinir leikinn sérðu hversu mörgum einvígjum við töpuðum í fyrri hálfleik þegar leikurinn snerist með Brentford,“ sagði De Zerbi. „Við spiluðum ekki vel. Við börðumst ekki rétt. Ekki vegna þess að við mundum ekki eftir síðasta tímabili. Því þessir leikmenn eru góðir með gildi og minni. En við töpuðum of mörgum einvígjum.“ Getum ekki rifið allt niður De Zerbi segir að ekki sé allt ómögulegt hjá Spurs þrátt fyrir tapið í dag. „Við verðum að greina þennan leik. Við getum ekki rifið allt niður því við erum að vinna vel. Líkamlegt ástand er ekki það sama hjá öllum leikmönnum því margir þeirra byrjuðu tímabilið seinna,“ sagði De Zerbi. „Ég vil ekki koma með afsakanir en við þurfum að halda áfram að bæta okkur. Við þurfum að finna rétta baráttuandann en í dag var hann ekki til staðar. Ég bjóst vissulega við betri frammistöðu en ekki við þessum úrslitum en ég vissi hvaða vandamáli við myndum mæta í dag.“ De Zerbi tók við Spurs undir lok síðasta tímabils þar sem liðið bjargaði sér naumlega frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Á miðvikudaginn mætir Tottenham Charlton Athletic í 2. umferð deildabikarsins. Næsti deildarleikur liðsins er gegn Newcastle United á heimavelli laugardaginn kemur.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira