Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 12:52 Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands í síðustu viku. Vísir/Anton Brink Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur.
Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl 2024. Læknir, sálfræðingur og tannlæknir sem tóku við brotaþola eftir að hann sneri aftur til Íslands frá Möltu báru vitni fyrir dómara í dag. Til stóð að taka skýrslu af maltneskum læknum en vegna erfiðleika við túlkun var þeim frestað. Sálfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands hitti brotaþola þrisvar sinnum árið 2024 eftir meinta fjárkúgun og frelsissviptingu. Líf brotaþola hafi verið í upplausn. „Augljóslega mjög erfið, hann gat ekki sofið og átti erfitt með að nærast,“ sagði sálfræðingurinn aðspurður um líðan hans. „Hann var stöðugt hræddur og mikið á varðbergi.“ Sálfræðingurinn hafi séð um meðferð brotaþola en vísað honum síðan annað. Þá hafi hún hitt brotaþola aftur fyrir fyrirtöku málsins. Hún telur að miðað við líðan brotaþola á þeirri stundu að hann þurfi á meðferð við áfallastreituröskun að halda, þótt hann hafi ekki verið formlega greindur. „Hann fór úr því að lifa lífi í frekar mikilli rútínu, upplifði mikið öryggi í vinnu og með vinum yfir í það að upplifa sig hvergi öruggan,“ sagði sálfræðingurinn. Einkenni brotaþola séu bæði vegna meints ofbeldis og meintrar ógnunar sem hann varð fyrir. „Um tíma var hann fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af.“ Sálfræðingurinn sem tók við brotaþola í júní 2024 tekur undir mat hins fyrra á líðan brotaþola. Hann hafi lítið sofið og verið mjög kvíðinn yfir daginn. Vinna hennar hafi snúist að grunnatriðum svo sem svefni og hreyfingu auk áfallahjálpar í stað eiginlegrar greiningarvinnu. Ekkert mat var framkvæmt á áfallastreituröskun. Auk endurupplifana hafi hann einnig miklar áhyggjur af dóttur sinni. Brotaþoli sagði sálfræðingnum að hann hefði miklar áhyggjur af því að sakborningarnir myndu fara á heimili dóttur hans. Tvíbrotinn kjálki Læknirinn starfaði áður hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og tók við brotaþola eftir að hann kom til landsins auk þess að þýða gögnin sem læknarnir á Möltu sendu til Íslands. Við skoðun læknisins fundust til dæmis áverkar undir höfði og hálsi, dökkleitt mar á vanga, mar á brjóstkassa neðarlega vinstra megin, hrufl á bakinu og á efri útlimum hægra megin. Þá hafi brotaþoli átt í vandamálum við að opna munn bæði vegna áverka og eftir aðgerð á kjálkanum. Hann hafi verið með tvíbrotinn kjálka, ofarlega hægra megin og svo vinstra megin. Töluverðum tíma er varið í að ræða áverka á höfði brotaþola sem læknirinn sagði að væri örlítið blæðingarsvæði þegar litlar æðar í heilanum gefa sig. Meiðslin voru dreifð um heilann, einhver í innra byrði heilans og meira milli heila og höfuðkúpu. „Ég myndi telja það vissulega alvarlega áverka,“ sagði læknirinn. Nýútdregnar tennur Læknirinn sagðist ekki hafa tekið eftir eða sérstaklega skráð hjá sér upplýsingar um tannheilsu brotaþola. Tannlæknir kom fyrir dómara og sagði að í munni brotaþola hefði vantað nokkrar tennur, til að mynda framtennur, og svo hefðu nokkrar aðrar verið brotnar. Hann gæti ekki fullyrt nákvæmlega hvenær hann hefði tapað tönnunum en það hafi verið nokkrum vikum áður en tannskoðunin fór fram í byrjun maí. „Það lítur út eins og þetta séu nýútdregnar tennur, þú sérð þar sem ræturnar eru og það hefur ekki myndast bein þar,“ segir tannlæknirinn. Hann tekur samt sem áður undir að brotaþoli hafi ekki verið við góða tannheilsu fyrir. Hann hafi verið með sýkingu sem taki lengri tíma að myndast. Að minnsta kosti fimm tannbil báru merki þess að tennurnar hefðu nýlega verið dregnar út. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjárkúgun í Reykholti Bláskógabyggð Dómsmál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira