Innlent

Á­stand vega í lok sumars, nýtt ein­kunna­kerfi og himin­lifandi pysjur

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld.
Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld.

Stjórnmálamenn verða að axla ábyrgð vegna ástands vegakerfisins í landinu að mati framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segist kvíða vetrinum framundan en djúpar rákir eru í vegum víða sem framkvæmdastjórinn segir stórhættulegar.

Við verðum í beinni frá einni nyrstu byggð Íslands en fullyrt er að þar sé að finna stærsta lífræna gulrótaakur landsins. Kristján Már Unnarsson hefur kynnt sér málið.

Þá fjöllum við um nýtt einkunnakerfi í grunnskólum, sem vakið hefur töluverða athygli. Bókstafir fá að fjúka og þeirra í stað koma tölustafir sem margir muna eftir úr eigin grunnskólagöngu.

Smári Jökull Jónsson kíkti svo til Vestmannaeyja þar sem lundapysjutímabilið stendur sem hæst. Björgun lundapysja er einn af hápunktunum hjá ungviðinu í Eyjum ár hvert og árið í ár er engin undantekning.

Í Sportinu er rætt við Aron Sigurðarson leikmann KR í knattspyrnu. Hann ætlar sér að skora þrjátíu mörk fyrir félagið og rústa markametinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×