Innlent

Kvöld­fréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um upp­sagnir

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar verða í beinni útsendingu í kvöldfréttum og ræða uppsagnir hjá borginni.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar verða í beinni útsendingu í kvöldfréttum og ræða uppsagnir hjá borginni. Vísir/Vilhelm

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar var sagt upp í dag. Í kvöldfréttum verður rætt við formann Sameykis sem segir uppsagnirnar fordæmalausar og gagnrýnir fyrirkomulagið. Þá mætast þau Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar í beinni og ræða aðgerðirnar.

Naumur meirihluti er fyrir viðræðum við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem við segjum frá. Þá hittum við sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu í beinni útsendingu og fáum nýjar tölur um kjörsókn utan kjörfundar.

Við verðum einnig í beinni frá Austurlandi þar sem Kristján Már Unnarsson ræðir áform um stórskipahöfn í Finnafirði, kynnum okkur auglýsingu sem var fjarlægð eftir gagnrýni og verðum í beinni frá krúttlegasta hlaupi landsins – hundahlaupinu í Mosfellsbæ.

Í Sportpakkanum verður meðal annars rætt við formann HSÍ um ákvörðun egypska landsliðsins sem er hætt við að koma til landsins í janúar til þess að spila æfingarleiki og strax að loknum kvöldfréttum sýnum við Pallborðið sem var á Vísi í dag en þar mættust þær Kristrún Frostadóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir meðal annarra vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þetta og fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×