Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Aron Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2026 11:27 Ólafur Guðmundsson sneri aftur inn á völlinn í gær eftir að hafa tekið skóna af hillunni en hefði viljað fá meiri spiltíma. Hann fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins sjö sekúndur. Ólafur Guðmundsson fór í gegnum mikinn tilfinningarússíbana í gær. Skórnir teknir af hillunni, höfðinglegar móttökur hjá hans bæjarliði sem kallaði fram gæsahúð en rautt spjald eftir nokkrar sekúndur inn á sem var ekki alveg samkvæmt áætlun. „
Ég veit ekki hvort þetta hafi verið sjö sekúndur, en þetta var allavegana í sekúndum talið,“ segir Ólafur í samtali við Vísi um rauða spjaldið sem hann fékk í endurkomu sinni með Kristianstad í gær gegn Ystad í sænska bikarnum. „Auðvitað er maður hátt uppi og allt það en þetta var bara óheppni. Það kemur maður sem fer í maður og mann sókn á mig og ég rekst í andlitið á honum. Harður dómur kannski að gefa rautt spjald, hefði verið nóg að gefa allavegana tvær mínútur en bara óheppni. Það vantar smá upp á tímasetningar hjá mér, fótavinnu og þar fram eftir götunum. Maður þarf að komast í gang. Það var búið að gefa rautt spjald fyrr í leiknum fyrir svipað brot þar sem farið var í andlit, þeir þurftu að fylgja því eftir. Maður lætur muna eftir sér þegar maður kemur inn á.“ Sannkallaður tilfinningarússíbani. „Auðvitað eru rosalega mikið af tilfinningum í gangi þarna. Þetta gerist hratt. Það er leikmaður sem meiðist og allt í einu er kallað á mig og mér sagt að fara úr treyjunni. Allt í einu er maður kominn með rautt spjald og sestur upp í stúku. Þetta var ákveðinn tilfinningarússíbani. Síðustu dagar hafa líka verið þannig að við vorum að ákveða hvort við ættum að kýla á þetta eða ekki. Ég get alveg viðurkennt að eftir leikinn í gær, þegar maður var kominn heim eftir allt einhvern veginn, var erfitt að ná sér niður eftir öll viðbrögðin sem maður fékk og svo rauða spjaldið. Var kannski ekki alveg eins og maður hafði hugsað sér. Fyrsti leikurinn á tímabilinu, nú er bara að horfa fram veginn og núllstilla sig.“ Vinur fékk hann til að taka fram skóna Fyrsti leikur Ólafs í langan tíma en fyrr á árinu hafði hann ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir erfitt síðasta tímabil með Karlskrona þar sem að hann spilaði ekkert vegna meiðsla. Gunnar Steinn Jónsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta og góður vinur Ólafs er kominn inn í þjálfarateymi Kristianstad og hann fékk Ólaf inn á æfingu hjá liðinu en góður Íslendingakjarni er hjá Kristianstad. Gunnar Steinn Jónsson er kominn inn í þjálfarateymi Kristianstadfjolnir.is Ólafur er vel metinn hjá Kristianstad og varð á sínum tíma margfaldur meistari með liðinu. Eftir vel heppnaðar æfingar var ákveðið að hann yrði hluti af leikmannahópi Kristianstad á tímabilinu. Skórnir komnir af hillunni. Gæsahúð og miklar tilfinningar Ólafur fékk magnaðar móttökur frá stuðningsmönnum Kristianstad í gær. „Þetta var ótrúleg upplifun. Ég fékk gæsahúð og var ekki langt frá því að fá tár í augað þegar ég var kynntur inn. Manni hlýnar um hjartarætur við að fá svona móttökur. Mér þykir rosalega vænt um það. Þetta er bæjarfélagið mitt sem ég er búinn að búa í rosalega lengi. Hér þekki ég rosalega mikið af fólki og þykir vænt um þau. Að þau skuli sýna mér þennan kærleik er bara yndislegt. Maður er ótrúlega þakklátur. Þetta var ótrúlega skemmtileg stund fyrir mig og fjölskylduna mína.“ Ólafur var á sínum tíma fyrirliði Kristianstad og raðaði inn titlum með félaginu. Hann er aftur orðinn leikmaður liðsins og getur lokað ferlinum með sínu liði. Kristianstad Ólafur, sem er 36 ára, er uppalinn hjá FH en fór ungur út í atvinnumennsku og var snemma kominn inn í A-landsliðið sem hann fór með á fjölda stórmóta, fyrst á EM í Austurríki árið 2010 þegar Ísland vann brons. Stór hluti af hans 15 ára atvinnumannaferli til þessa hefur verið hjá Kristianstad. „Maður hefur verið í þessu lengi. Að fólk sýni manni þetta þakklæti er frábært. Að það sé glatt með að ég sé kominn til baka og endi þetta með mínum heimaklúbbi. Sýnir að maður hefur skilið eitthvað eftir sig. Ég er sömuleiðis þakklátur sem IFK Kristianstad hefur gert fyrir mig. Þetta er í báðar áttir.“ Nánar verður farið yfir komandi tíma Ólafs hjá Kristianstad, verkefnið framundan, á miðlum Sýnar fyrir helgi.
Sænski handboltinn Handbolti Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira