Handbolti

Stórleikur Donna dugði skammt

Sindri Sverrisson skrifar
Donni hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá SAH.
Donni hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá SAH. sa-h.dk

Landsliðsskyttan Kristján Örn Kristjánsson, eða Donni, ybbaði gogg og rúmlega það þegar SAH mætti GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og skoraði heil ellefu mörk.

Þessi stórleikur Donna dugði þó ekki til því GOG vann á endanum þriggja marka útisigur, 34-31.

GOG var 20-17 yfir í hálfleik en Donni minnkaði muninn í eitt mark, 27-26, þegar ellefu mínútur voru enn eftir.

GOG náði aftur að minnka muninn í eitt mark en aldrei tókst að jafna metin og á endanum fóru gestirnir með sigur af hólmi.

Donni skoraði mörkin sín gegn hinum 37 ára gamla landsliðsmerkverið Kevin Möller og Frederik Möller sem skiptu spiltímanum nokkuð jafnt á milli sín.

Eins og gefur að skilja var Donni langmarkahæstur í leiknum en næstur á eftir honum hjá SAH kom Fredrik Olsson með sex mörk. Donni skoraði mörkin ellefu úr átján skotum og átti auk þess þrjár stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×