Lífið

Ás­laug Arna mætti með nýja kærastann

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Áslaug Arna sat lengi á þingi áður en hún fór Bandaríkjanna.
Áslaug Arna sat lengi á þingi áður en hún fór Bandaríkjanna. Vísir/Vilhelm

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, er farin að slá sér upp með Jónasi A. Aðalsteinssyni húðlækni. Þau mættu saman í brúðkaup Margrétar Bjarnadóttur og Ísaks Ernis Kristinssonar sem gengu í það heilaga í Skálholti í gær.

Manhattan-eyja í New York er meðal þess sem sameinar þau Áslaugu Örnu og Jónas. Áslaug hélt vestur um haf sumarið 2025 til að leggja stund á meistaranám í alþjóðlegri opinberri stjórnsýslu við hinn virta Columbia University. Jónas var búsettur vestan hafs þar sem hann var í sérnámi í húðmeinafræði við Mount Sinai-háskólasjúkrahúsið í New York.

Þann 1. september 2025 var tilkynnt að Jónas hefði tekið að sér stöðu yfirlæknis húð- og kynsjúkdóma á Landspítalanum og varð um leið prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.

Jónas lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og doktorsprófi í læknavísindum frá sama skóla árið 2021. Hann sérhæfði sig í húðlækningum við University of Connecticut School of Medicine og jafnframt sérnámi í húðmeinafræði frá Mount Sinai í New York þar sem hann starfaði síðar.

Móðir Jónasar er Ásdís Halla Bragadóttir. Í tíð Áslaugar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, réði hún Ásdísi Höllu sem verkefnastjóra og var svo tilkynnt að hún yrði tímabundið sett ráðuneytisstjóri. 

Umboðsmaður Alþingis komst hins vegar að því að Áslaugu hefði verið óheimilt að setja Ásdísi Höllu sem ráðuneytisstjóra án auglýsingar.

Það er óhætt að segja að Áslaug Arna standi á tímamótum. Hún fór í leyfi frá þingstörfum til að sinna náminu í New York og ákvað svo í byrjun sumars að kveðja Alþingi. Hún hafði þá verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins í áratug. Nýlega réð hún sig til íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Fenris Creations, áður CCP, og verður starfsmaður á skrifstofu fyrirtækisins í London.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.