Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. ágúst 2026 17:15 Bob Dylan gaf út Highway 61 Revisited fyrir 61 ári síðan. Sjötta plata tónlistarmannsins Bobs Dylan, Highway 61 Revisited, kom út þann 30. ágúst 1965, fyrir 61 ári og einum degi, og olli straumhvörfum í rokktónlist. Platan markaði tímamót á ferli Dylan sem færði sig með plötunni úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist í rafmagnað rokk.
Dylan gaf út fyrstu fimm plötur sínar yfir þriggja ára tímabil frá mars 1962 til apríl 1965 og festi sig í sessi sem ein mest spennandi rödd þjóðlagatónlistar og upprennandi stjarna á heimsvísu. Á fimmtu plötu sinni, Bringing it All Back Home, prófaði Dylan sig áfram með rafmagnsgítar eftir að hafa einungis notast við órafmögnuð hljóðfæri. Sú ákvörðun hneykslaði marga aðdáendur tónlistarmannins en hann olli enn meiri hneykslan á þjóðlagahátíðinni í Newport þann 25. júlí 1965. Þar hann hélt sína fyrstu rafmögnuðu tónleika og var talað um að Dylan væri „going electric“ eða að „verða rafmagnaður“ á bjagaðri íslensku. Þetta tímabil var tekið fyrir í ævisögulegu kvikmyndinni A Complete Unknown með Timothee Chalamet í hlutverki tónlistarmannsins. Sjá einnig: Bob og Robbie í bobba Það sumarið, hafði Dylan sömuleiðis verið að vinna að nýrri plötu í Studio A í New York og lauk rúmlega sex vikna upptökum á henni 4. ágúst 1965. Níu laga platan Highway 61 Revisited kom svo út 30. ágúst 1965 og varð Dylan þar með endanlega rafmagnaður. Highway 61 Revisited átti stóran þátt í uppgangi þjóðlagarokks og sýndi upphafslagið „Like a Rolling Stone“ fram á að lengri, óhefðbundnari lög gætu ratað á vindsældarlista rétt eins og styttri popplög. Dylan aflaði sér fjölda nýrra aðdáenda samhliða því að fæla marga gamla aðdáendur frá en platan rataði þrátt fyrir það í þriðja sæti á vinsældarlista Billboard. Platan mótaði næstu áratugi rokktónlistar, þykir meðal bestu breiðskífa sögunar og eru áhrif hennar ómæld á samtímatónlist. Lagið „Like a Rolling Stone“ hefur fest sig í sessi sem vinsælasta lag rokkarans og gjarnan ratað ofarlega á marga topplista yfir bestu lög sögunnar. Sjá einnig: Bob Dylan áttræður og því fagna allir góðir menn Dylan var sjálfur meðvitaður um ágæti plötunnar og sagði þegar hún kom út: „Ég er ekki að fara að gera aðra jafngóða plötu og þessa“. Highway 61 Revisited hefur selst í milljónum eintaka síðan hún kom út og var innlimuð inn í frægðarhöll Grammy-verðlaunanna árið 2002. Dylan, sem er orðinn 85 ára, á rúmlega sextíu ára feril að baki, hefur gefið út fjörutíu breiðskífur á ferli sínum til viðbótar við gríðarlega fjölda safnplatna og tónleikaplatna og hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 2016 auk fjölda annarra viðurkenninga.
Tónlist Bandaríkin Tímamót Tengdar fréttir Dularfull tíst Dylans vekja furðu Bandaríski tónlistarmaðurinn og nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan er skyndilega orðinn virkur á samfélagsmiðlinum X, nú þegar hann er 83 ára gamall. 20. nóvember 2024 20:01 Bob Dylan yfir sig hreykinn af Nóbelsverðlaununum Bob Dylan var ekki á staðnum til að veita verðlaununum viðtöku en í ræðu sem að sendiherra Bandaríkjanna í Svíþjóð las upp fyrir hans hönd sagðist hann yfir sig hreykinn af verðlaununum. 11. desember 2016 18:20 Bob Dylan hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bandaríska tónskáldið Bob Dylan hlýtur verðlaunin 2016. 13. október 2016 10:54 Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Fleiri fréttir Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Sjá meira
Dularfull tíst Dylans vekja furðu Bandaríski tónlistarmaðurinn og nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan er skyndilega orðinn virkur á samfélagsmiðlinum X, nú þegar hann er 83 ára gamall. 20. nóvember 2024 20:01
Bob Dylan yfir sig hreykinn af Nóbelsverðlaununum Bob Dylan var ekki á staðnum til að veita verðlaununum viðtöku en í ræðu sem að sendiherra Bandaríkjanna í Svíþjóð las upp fyrir hans hönd sagðist hann yfir sig hreykinn af verðlaununum. 11. desember 2016 18:20
Bob Dylan hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bandaríska tónskáldið Bob Dylan hlýtur verðlaunin 2016. 13. október 2016 10:54