Innlent

Kviknaði í jeppa á Reykja­nes­braut

Kjartan Kjartansson skrifar
Reykur frá jeppa sem kviknaði í á Reykjanesbraut í morgun.
Reykur frá jeppa sem kviknaði í á Reykjanesbraut í morgun. Vísir

Eldur kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut við Arnarnesveg nú á níunda tímanum í morgun. Slökkvilið er komið á vettvang.

Tilkynnt var um eldinn skömmu eftir hálf níu í morgun. Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafði ekki upplýsingar um annað en að ökumaður bílsins hefði komist klakklaust út úr honum.

Töluverð umferðarteppa hefur myndast á Reykjanesbraut nærri Smáralind vegna óhappsins. Varðstjóri slökkviliðs sagði að slökkviliðsmenn yrðu snöggir að ráða niðurlögum eldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×