Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. september 2026 16:23 Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri. Vísir/Lýður Valberg Reykjavíkurborg hyggst segja upp leigusamningum eftir að miðstöðvar borgarinnar og frístundamiðstöðvar voru lagðar niður. Þar á meðal er leigusamningur þeirra í húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti.
86 starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp þegar Reykjavíkurborg réðist í skipulagsbreytingar og lokaði fjórum miðstöðvum sínum auk sex frístundamiðstöðva. Miðstöðvarnar voru Vesturmiðstöð, Norðurmiðstöð, Austurmiðstöð og Suðurmiðstöð. Frístundamiðstöðvarnar voru Brúin, Kringlumýri, Miðberg, Tjörnin, Keðjan og Virknihús. Þá var alþjóðateymið lagt niður. Í tillögunni sem lögð var fyrir borgarráð segir að breytingarnar hafi verið til að draga úr kostnaði við yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Í greinargerð skjalsins segir að breytingarnar feli í sér að 62,3 stöðugildi voru lögð niður, 32 stöðugildi tóku breytingum og 23 starfsmenn voru færðir til í starfi. „Breytingarnar hafa jafnframt áhrif á nýtingu borgarinnar á húsnæði. Gert er ráð fyrir að leigusamningum vegna húsnæðis að Efstaleiti 1, Borgartúni 6, Álfabakka 10 og Þönglabakka 4 verði sagt upp,“ segir í greinargerðinni. „Við mat á hagræðingu vegna húsnæðis verður tekið tillit til kostnaðar sem kann að falla til vegna flutninga og breyttrar húsnæðisnotkunar, þar á meðal mögulegs aukins leigukostnaðar á nýjum starfsstöðvum.“ Fjárhagsleg heildaráhrif breytinganna eru áætluð um níu hundruð milljónir króna. Þar sé einkum um að ræða áhrif vegna fækkunar stöðugilda, breytinga á stjórnskipulagi og lægri húsnæðiskostnaðar. Markmiðið hafi þá ekki verið að færa þjónustuna fjær þeim sem nýta sér hana heldur „leiða saman sérfræðiþekkingu starfsfólks svo hún geti nýst betur í þjónustu við íbúa“.
Borgarstjórn Ríkisútvarpið Reykjavík Rekstur hins opinbera Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira